Fréttir
Steinunn Snorradóttir ráðin deildarstjóri
Steinunn Snorradóttir hefur verið ráðin í stöðu deildastjóra yngra stigs. Steinunn, betur þekkt sem Denna, hóf störf við Heiðarskóla árið 2007 og hefur síðan þá starfað sem námsráðgjafi. Þetta skólaárið hefur hún sinnt námsráðgjöf ásamt því að leysa af sem deildarstjóri yngra stigs. Við óskum henni til hamingju með ráðninguna!...
Lesa meiraSvava Rún í þriðja sæti í Stóru upplestrarkeppninni
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Duus húsum í gær, fimmtudaginn 13. mars. Fulltrúar Heiðarskóla voru þau Arnar Geir Halldórsson og Svava Rún Sigurðardóttir. Alls kepptu 14 nemendur úr öllum skólum Reykjanesbæjar og Sandgerðisskóla. Keppnin var jöfn og spennandi og stóðu þau Arnar Geir og Svava Rún sig afar vel enda höfðu þau æft af k...
Lesa meiraFyrri hluti kennslumyndbanda tilbúinn
Þriðjudaginn 11. mars sl. kynntu stærðfræðikennararnir Íris Ástþórsdóttir, Þóra Guðrún Einarsdóttir og Þórey Garðarsdóttir fyrri hluta af upptökum sínum af innlögnum námsþátta í stærðfræði fyrir stjórnendum, fulltrúum Keilis og fræðslustjóra. Verkefnið er samstarf Heiðarskóla og Keilis og samkvæmt samningi verða upptökurnar gerðar aðgengilega öllum...
Lesa meiraArnar Geir og Svava Rún í úrslit Stóru upplestrarkeppninnar
Fimmtudaginn síðast liðinn voru þau Arnar Geir Halldórsson og Svava Rún Sigurðardóttir valin úr hópi 6 nemenda í 7.HS til að vera fulltrúar Heiðarskóla í Stóru upplestrarkeppninni sem fram fer í Duus húsum 13. mars nk. Aðrir keppendur voru þau Aron Smári Ólafsson, Elín Rós Bjarnadóttir, Elísabet D. Vilhjálmsdóttir og Nói Sigurðarson. Öll stóðu þau ...
Lesa meiraÖskudagsfjör
Á öskudaginn var kennsla brotin upp með ýmsum hætti í skólastofum og fengu stórar sem smáar furðuverur að spranga um skólann, fara í gegnum hið ógurlega draugahús og dansa í íþróttasalnum. Allt fór þetta afar vel fram og gaman var að sjá hversu margir mættu í búningum í öllum bekkjadeildum. Fleiri myndir má sjá í myndasafni....
Lesa meiraÖskudagur
Miðvikudagur 5. mars, öskudagur, er skertur nemendadagur. Nemendur í 1.-4. bekk eru í skólanum kl. 8.10-11.00 Nemendur í 5.-10. bekk eru í skólanum kl. 8.10-10.30 Allir nemendur mæta í sínar heimastofur kl. 8.10. Þennan dag mega nemendur og starfsmenn mæta furðufötum....
Lesa meiraEyþór Vilmundur mælir með...
Artemis Fowl Höfundur bókanna um Artemis Fowl heitir Eoin Colfer, en Guðni Kolbeinsson þýðir þær. Fyrsta bókin heitir einfaldlega Artemis Fowl en hún kom út árið 2001 og Guðni þýddi hana á íslensku sama ár. Miðað við hvað bækurnar eru búnar að vera lengi á markaðnum eru þær ennþá mjög vinsælar. Þetta er bara fyrsta bókin af nokkrum og ævintý...
Lesa meiraLitla upplestrarhátíðin
Í morgun var litla upplestrarhátíðin haldin á sal skólans þar sem nemendur í 4. bekk lásu sögu og vel valin ljóð auk þess sem þau sungu Þorraþrælinn og Á íslensku má alltaf finna svar. Eins og venja er var foreldrum boðið að koma og taka þátt í hátíðarhöldunum. Nemendur stóðu sig ákaflega vel enda hafa þeir lagt mikið á sig undanfarna daga og vikur...
Lesa meiraVetrarfrí dagana 27. febrúar - 2. mars
Dagana 27. febrúar - 2. mars er vetrarfrí hjá nemendum og starfsfólki Heiðarskóla. Frístundaskólinn er lokaður fimmtudaginn og föstudaginn 27. og 28. febrúar....
Lesa meiraÁnægjuleg íþróttavika að baki
Þá er ánægjulegri íþróttaviku lokið. Nemendur af öllum skólastigum skemmtu sér t.d. í brennó, gryfjubolta, survivor og fleiri skemmtilegum leikjum. Nemendur í 10. bekk kepptu svo á móti sprækum kennurum, piltarnir í fótbolta og stúlkurnar í stórubolta. Kennarar unnu góðan sigur í fótboltanum en þeir tefldu m.a. fram núverandi og fyrrverandi meistar...
Lesa meira






