26. febrúar 2014

Litla upplestrarhátíðin

Í morgun var litla upplestrarhátíðin haldin á sal skólans þar sem nemendur í 4. bekk lásu sögu og vel valin ljóð auk þess sem þau sungu Þorraþrælinn og Á íslensku má alltaf finna svar. Eins og venja er var foreldrum boðið að koma og taka þátt í hátíðarhöldunum. Nemendur stóðu sig ákaflega vel enda hafa þeir lagt mikið á sig undanfarna daga og vikur við að undirbúa sig fyrir hátíðina. Að dagskrá lokinni gæddu nemendur sér á sætabrauði sem þeir máttu hafa með sér í skólann í tilefni dagsins og foreldrum var boðinn kaffisopi. Fleiri myndir má sjá í myndasafni.

 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan