Fréttir

Vel heppnaðir bókaþemadagar
28. október 2015
Vel heppnaðir bókaþemadagar

Dagana 20.-22. október voru bókaþemadagar í Heiðarskóla. Sögurnar af Lottu einkenndu verkefnavinnu nemenda í 1.-4. bekk. Gula gangi var breytt í Skarkalagötu með litríkum pappírsfígúrum og ýmsu skrauti. Þar voru einnig samin ljóð um Lottu, útbúin bókamerki og farnar voru bíóferðir í Nýja bíó þar sem horft var á Lottumynd, svo fátt eitt sé nefnt. Mi...

Lesa meira
Bleikur dagur í Heiðarskóla
28. október 2015
Bleikur dagur í Heiðarskóla

Föstudagurinn 16. október var bleikur dagur hér í Heiðarskóla en október er ár hvert mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameini hjá konum. Starfsfólk og nemendur sýndu baráttunni stuðning með því að mæta í skólann í einhverju bleiku eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Fleiri myndir má sjá í...

Lesa meira
Heiðarskólahlaupið
28. október 2015
Heiðarskólahlaupið

Þann 1. og 2. október fór fram víðavangshlaup Heiðarskóla á opna svæðinu á milli Heiðarbóls og Valla. Nemendur á öllum aldursstigum tóku þátt og gátu valið um að hlaupa 1,1; 2,2; eða 3,3 km. Veittar voru viðurkenningar fyrir 1., 2. og 3. sætið í 3.-4. bekk en nemendur í 1. og 2. bekk fengu bekkjarviðurkenningar. Nemendur á unglingastigi höfðu einni...

Lesa meira
Vetrarfrí 23. og 26. október
20. október 2015
Vetrarfrí 23. og 26. október

Vetrarfrí verður í Heiðarskóla föstudaginn 23. október og mánudaginn 26. október. Þá er frí hjá nemendum og frístundaskólinn er lokaður þessa tvo daga. Kennsla hefst að nýju þriðjudaginn 27. október samkvæmt stundaskrá....

Lesa meira
Skólamatur gefur bókina Lífsþróttur
5. október 2015
Skólamatur gefur bókina Lífsþróttur

Fyrr í dag gaf Fanný Axelsdóttir, mannauðsstjóri Skólamatar, skólanum bókina Lífsþróttur - næringarfræði fróðleiksfúsra eftir Ólaf Gunnar Sæmundsson næringarfræðing. Haraldur aðstoðarskólastjóri veitti þessari góðu gjöf viðtöku. Við kunnum Skólamat bestu þakkir fyrir. Bókina verður að finna á bókasafni skólans....

Lesa meira
Alþjóðadagur kennara 5. október
5. október 2015
Alþjóðadagur kennara 5. október

Mánudagurinn 5. október er Alþjóðadagur kennara. UNESCO og Alþjóðasamtök kennara stofnuðu til dagsins þann 5. október árið 1994. Til hamingju, kennarar!...

Lesa meira
Lestrarvinir í 1. og 6. bekk
29. september 2015
Lestrarvinir í 1. og 6. bekk

Lestrarvinir í 1. og 6. bekk hittust í gær og áttu notalegar lestrarstundir saman víðs vegar um skólann. Kennarar nemendanna komu þessum vináttuböndum á og var þetta fyrsta vinastundin á þessu skólaári. Áberandi var hve ábyrgðarfullir nemendur í 6. bekk og lögðu þeir sig fram við að lesa sögur og spjalla um merkingu orða og innihald textans. Nemend...

Lesa meira
Samræmd könnunarpróf dagana 21.-25. september
17. september 2015
Samræmd könnunarpróf dagana 21.-25. september

Skipulag vegna samræmdra prófa dagana 21.-25. september er sem hér segir: 10. bekkur Mánudagur 21/9  - íslenska Þriðjudagur 22/9 - enska Miðvikudagur 23/9 - stærðfræði Alla prófdaga mæta nemendur í 10. bekk í skólann kl. 8.30. Próftíminn er kl. 9.00-12.00. Nemendur eiga að hafa með sér bláan eða svartan penna, blýant og blý eða yddara í...

Lesa meira
Stjórn nýs nemendaráðs skipuð
17. september 2015
Stjórn nýs nemendaráðs skipuð

Á dögunum var kosið í nýja stjórn nemendaráðs Heiðarskóla. Guðni  Ívar Guðmundsson nemandi í 10.EP var kosinn formaður, Ísabella Magnúsdóttir nemandi  í 10.LA var kosinn varaformaður, Dominika Inga Klimaszewska nemandi í 9.ÍÁ var kosinn ritari og Arndís Lind Aðalbjörnsdóttir nemandi í 10.LA var kosinn meðstjórnandi. Á næstu vikum mun stjórnin hei...

Lesa meira
Má ég vera memm? Bókagjöf
17. september 2015
Má ég vera memm? Bókagjöf

Fyrr í mánuðinum afhenti Harpa Lúthersdóttir skólanum fjölda eintaka af bók sinni Má ég vera memm? ásamt kennsluleiðbeiningum. Í inngangi bókarinnar lýsir Harpa því að bókin fjallar um einelti í máli og myndum sem ætti höfða vel til barna á aldrinum 3 til 9 ára. Hún segir jafnframt frá því að sjálf lenti hún í slæmu einelti á barnsaldri og að það h...

Lesa meira
  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus