Fréttir
Hugvitsdagur og stofupartý
Það var nóg um að vera hjá nemendum í Heiðarskóla í vikunni. Á miðvikudaginn var Hugvitsdagur og unnu nemendur að ýmsum verkefnum bæði í samvinnu og sem einstaklingar. Það var virkilega gaman að fylgjast með öllum takast á við hinar ýmsu þrautir. Á fimmtudaginn var stofupartý, en foreldrafélög grunnskólanna buðu í partý þar sem bræðurnir Jón Jónsso...
Lesa meiraStofupartý fyrir alla grunnskóla Reykjanesbæjar
Á fimmtudaginn standa foreldrafélög grunnskólanna og FFGíR fyrir stofupartý í öllum grunnskólum Reykjanesbæjar. Þau vilja búa til hressilega stemningu og skapa eftirminnilegar minningar 😊 Markmiðið FFGíR er að koma inn með smá gleði, dansa og syngja saman í gegnum vonandi síðustu metra faraldursins og sýna í verki þakklæti til starfsfólks og nemen...
Lesa meiraRöskun á skólastarfi mánudaginn 7. febrúar
Í ljósi þess að gefin hefur verið út rauð viðvörun fyrir okkar landsvæði í nótt og snemma í fyrramálið verður upphafi skólastarfs seinkað til kl. 10:00. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að fylgjast vel með tilkynningum frá skólanum ef frekari röskun verður á skólastarfi....
Lesa meiraMatsdagur 1. febrúar
Þriðjudaginn 1. febrúar er matsdagur í Heiðarskóla. Þann dag munu nemendur og foreldrar ásamt umsjónarkennara fara yfir námsmat og yfirfara markmið. Samtölin munu fara fram á Teams. Frístundaheimilið er opið frá 8:10 - 16:15....
Lesa meiraSigurvegari í teiknimyndasamkeppni
Nemendur í 3. bekk tóku á dögunum þátt í teiknimyndasamkeppni á vegum breska sendiráðsins sem hét „Draw a Scientist“. Samkeppnin var í boði fyrir 5 – 14 ára börn á Íslandi og áttu þau að teikna vísindamanneskju og gefa henni nafn. Mikill fjöld mynda bárust í keppnina og í ljósi þess ákváðu dómarar að velja tvo vinningshafa. Garðar Júlían Alexanders...
Lesa meiraVegna veðurspár næstu daga
Ef veðurspár ganga eftir verður ansi hvasst á morgun, miðvikudag og enn meira hvassviðri er spáð á fimmtudag. Við minnum á að skólinn er öruggt skjól en foreldrar þurfa að fylgja barni sínu í og úr skóla ef þannig viðrar. Vinsamlega fylgist vel með veðurspám og tilkynningum. http://www.heidarskoli.is/skolinn/vidbragdsaaetlanir...
Lesa meiraSkóli hefst eftir jólafrí
Skóli hefst aftur eftir jólafrí, þriðjudaginn 4. janúar....
Lesa meiraAðventan í Heiðarskóla
Aðventudagskráin í ár var með eins hefðbundnu sniði og aðstæður leyfðu en samt ólík því sem við eigum að venjast. Nemendur fengu upplestur frá ýmsum rithöfundum, fóru í jólaratleik um skólann, voru með súkkulaði og piparkökustund, horfðu á jólamynd og borðuðu saman hátíðarmáltíð á sal skólans með sínum árgang. Eins og í fyrra vorum við með stofujó...
Lesa meira















