Fréttir

Breyting á stofujólum og jólafríi
14. desember 2021
Breyting á stofujólum og jólafríi

Tekin hefur verið ákvörðun að færa stofujólin af mánudeginum 20. desember fram til föstudagsins 17. desember. Nemendur munu mæta samkvæmt stundatöflu að morgni en síðan fara stofujól fram í umsjónarstofum eftir hádegi.  Það sama gildir og áður að nemendur mega koma með smákökur/sætabrauð og gos (ekki orkudrykki). Athugið að nemendur þurfa einnig að...

Lesa meira
Stofujól 20. desember
14. desember 2021
Stofujól 20. desember

Mánudaginn 20. desember verður hin árlega jólaskemmtun í skólanum en hún fer ekki fram í íþróttasal eins og hefð er fyrir heldur í umsjónarstofum, eins og gert var í fyrra.  Nemendur mega koma með smákökur eða annað sætabrauð og drykk að eigin vali. Gos er leyfilegt en þó ekki orkudrykkir. Nemendur eru hvattir til að mæta snyrtilega klæddir. Jólas...

Lesa meira
Aðventan í Heiðarskóla
30. nóvember 2021
Aðventan í Heiðarskóla

Föstudaginn 26. nóvember hófumst við handa við að færa skólann í jólabúning. Nemendur í 1. - 7. bekk unnu ýmis verk tengd jólunum og nemendur í 8. - 10. bekk tóku þátt í árlegri stofuskreytingarkeppni en úrslitin voru kunngjör í morgun. Dagskrá aðventunnar verður með eins hefðbundnu sniði og hægt er en eins og í fyrra verður útfærslan ólík því sem...

Lesa meira
Starfsdagur og skertur nemendadagur.
23. nóvember 2021
Starfsdagur og skertur nemendadagur.

Fimmtudagurinn 25. nóvember er starfsdagur í Heiðarskóla. Þann dag eru nemendur í fríi og frístundaskólinn lokaður. Föstudagurinn 26. nóvember er svo skertur nemendadagur og lýkur þá skóladegi allra nemenda kl. 11.10. Þennan dag hefjumst við handa við að koma skólanum í jólabúning. Nemendur í 1. - 4. bekk geta fengið sér að borða áður en farið er ...

Lesa meira
Skólastarf næstu þrjár vikur
13. nóvember 2021
Skólastarf næstu þrjár vikur

Ný reglugerð með samkomutakmörkunum hefur verið gefin út gildir hún fyrir tímabilið 13. nóvember til og með 8. desember. Helstu breytingar eru fjöldatakmarkanir og aukin grímunotkun starfsfólks. Aftur ber okkur að takmarka aðgengi utanaðkomandi aðila að skólanum eins og kostur er. Hér er upptalning á því sem okkur ber að fara eftir þessa skóladaga...

Lesa meira
Háttvísidagur Heiðarskóla
8. nóvember 2021
Háttvísidagur Heiðarskóla

Árlega erum við með Háttvísidag Heiðarskóla og tengjum hann við baráttudag gegn einelti sem er 8. nóvember ár hvert. Dagurinn hófst með ljósagöngu. Markmiðið með ljósagöngunni er að sýna táknrænt fram á að það er alltaf ljós í myrkrinu, það er alltaf von. Við göngum saman til að sýna að við erum ekki ein og saman náum við að lýsa upp heiminn. Ljósi...

Lesa meira
Skólaslit og Halloween
29. október 2021
Skólaslit og Halloween

Halloween vika í Heiðarskóla Halloween hefur einkennt þessa viku í skólanum okkar sem tengist mikið verkefnum í vinnu með Skólaslit (sjá skolaslit.is). Síðustu kaflar í sögunni litu dagsins ljós og var spennan mikil.  Kraftur, gleði og samvinna skein á göngum og í stofum í skólanum og var fjölbreytnin mikil. Í dag var svo lokadagurinn þar sem nemen...

Lesa meira
Skertur bleikur Uppbyggingarstefnudagur og vetrarfrí
13. október 2021
Skertur bleikur Uppbyggingarstefnudagur og vetrarfrí

Föstudaginn 15. október er skertur kennsludagur í Heiðarskóla. Allri kennslu lýkur kl. 11.10 en frístundaheimilið er opið frá þeim tíma.   Nemendur í 1.-4. bekk geta borðað hádegismatinn sinn áður en þeir fara heim eða í frístundaheimilið. Rétt er að taka fram að foreldrar nemenda í 5.-10. bekk greiða ekki fyrir máltíðir á skertum dögum.   Uppbygg...

Lesa meira
Starfsáætlun Heiðarskóla 2021 - 2022
11. október 2021
Starfsáætlun Heiðarskóla 2021 - 2022

Starfsáætlun Heiðarskóla fyrir skólaárið 2021 – 2022 hefur verið samþykkt af skólaráði. Í starfsáætlun skal hver skóli birta stefnu sína samkvæmt aðalnámskrá. Í henni má finna stefnur og markmið starfsins þetta skólaárið ásamt almennum upplýsingum um skólahaldið. Einnig eru þar að finna hinar ýmsu áætlanir, skólareglur og fleira. Ef þið hafið ábend...

Lesa meira
Skólaslit
1. október 2021
Skólaslit

SKÓLASLIT er spennandi lestrarupplifun fyrir áhugasama og forvitna krakka og líka alla hina sem vilja vera með. Lestrarupplifunin er í boði Reykjanesbæjar og er hugafóstur kennsluráðgjafa á Reykjanesi og Ævars Þórs Benediktssonar rithöfundar. SKÓLASLIT er hrollvekja í þrjátíu og einum hluta. Sagan fjallar um hóp af krökkum sem lokast inni í skólanu...

Lesa meira
  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus