Fréttir

Flakkað um tímann á árshátíðum
17. mars 2017
Flakkað um tímann á árshátíðum

Árshátíðirnar okkar þrjár fóru fram á sal skólans í dag. Yfirskrift þeirra var TÍMAVÉLIN og gerðu átta nemendur í 5. og 6. bekk sér lítið fyrir og hönnuðu tímavél sem setti flottan svip á sviðið. Nemendur flökkuðu svo um tímann í atriðum sínum sem voru í anda ákveðins áratugs.  Sannkölluð söngveisla var á árshátíð yngsta stigs. Fjölmennur hópu...

Lesa meira
Árshátíð Heiðarskóla 2017 - Upplýsingar
13. mars 2017
Árshátíð Heiðarskóla 2017 - Upplýsingar

Nemendaárshátíðir   Fimmtudaginn 16. mars verða haldnar nemendaárshátíðir á sal skólans fyrir yngsta- og miðstig. Nemendur hvers stigs eru þá samankomnir á sal þar sem þeir sýna og horfa á atriði. Ekki er gert ráð fyrir að foreldrar/forráðamenn séu gestir þennan daginn. Skipulag dagsins er á þessa leið:   Kl. 8.10 – 5. - 7. bekkur. Kl. 9....

Lesa meira
Samræmd próf í 9. og 10. bekk
3. mars 2017
Samræmd próf í 9. og 10. bekk

Samræmd könnunarpróf í 9. og 10. bekk fara fram dagana 7. - 10. mars. Tímasetningar eru sem hér segir: Þriðjudagur 7. mars   10. bekkur - íslenska/fyrri enska   Hópur 1 mætir í skólann kl. 8.10. Próftími: 8:30-11:00 Hópur 2 mætir í skólann kl. 11.10. Próftími: 11:30-14:00   Miðvikudagur 8. mars   9. bekkur - íslenska/fyrri...

Lesa meira
Öskudagur - skertur nemendadagur
27. febrúar 2017
Öskudagur - skertur nemendadagur

Öskudagur verður með hefðbundnu sniði í Heiðarskóla. Allir nemendur mæta í sínar heimastofur kl. 8.10 og eru þeir hvattir til að koma í öskudagsbúningum. Á dagskrá verða m.a. draugahúsferðir fyrir þá sem vilja, dans í íþróttasal, spil og leikir. Þetta er skertur nemendadagur og mun því skipulögðu skólastarfi ljúka kl. 11.00. Nemendur geta borðað áð...

Lesa meira
Öskudagur - skertur nemendadagur
27. febrúar 2017
Öskudagur - skertur nemendadagur

Öskudagur verður með hefðbundnu sniði í Heiðarskóla. Allir nemendur mæta í sínar heimastofur kl. 8.10 og eru þeir hvattir til að koma í öskudagsbúningum. Á dagskrá verða m.a. draugahúsferðir fyrir þá sem vilja, dans í íþróttasal, spil og leikir. Þetta er skertur nemendadagur og mun því skipulögðu skólastarfi ljúka kl. 11.00. Nemendur geta borðað áð...

Lesa meira
Hjördís og Þorbergur í úrslit Stóru upplestrarkeppninnar
24. febrúar 2017
Hjördís og Þorbergur í úrslit Stóru upplestrarkeppninnar

Í gær, fimmtudaginn 23. febrúar, voru þau Hjördís Arna Jónsdóttir og Þorbergur Freyr Pálmarsson valin úr hópi 10 nemenda í 7. bekk til að vera fulltrúar Heiðarskóla í Stóru upplestrarkeppninni sem fram fer í Hljómahöllinni 6. mars nk. Rakel Ýr Þórðardóttir var jafnframt valin varamaður. Aðrir keppendur voru þau Magnús Már Garðarsson, Eyþór Trausti ...

Lesa meira
Nemendur í 10. bekk á Skólaþingi
24. febrúar 2017
Nemendur í 10. bekk á Skólaþingi

Nemendur í 10. bekk tóku þátt í Skólaþingi þriðjudaginn 14. febrúar. Skólaþing fer fram í húsnæði gegnt Alþingishúsinu við Austurvöll en þar er búið að setja upp lítið Alþingshús. Skólaþing er hlutverkaleikur þar sem nemendur fá það hlutverk að vera alþingismenn. Allir fá nafn og stjórnmálaflokk til að vera í.  Þingflokkarnir byrja að hittast í þin...

Lesa meira
Íþróttadagar 13.-16. febrúar
13. febrúar 2017
Íþróttadagar 13.-16. febrúar

Þessa vikuna standa íþróttadagar yfir hjá okkur og lýkur þeim með keppni 10. bekkinga og starfsfólks eftir hádegi á fimmtudaginn. Allir nemendur fá tvær íþróttastundir þar sem þeir fara í ýmsa skemmtilega leiki með samliggjandi árgöngum. Nemendur hafa verið hvattir til að koma í þægilegum fötum sem heppileg eru til hreyfingar þann dag sem íþróttast...

Lesa meira
Skólanum gefin púsl
13. febrúar 2017
Skólanum gefin púsl

Gísli G. Bjarnason gaf skólanum á dögunum átta glæný púsl eftir að kennari í skólanum auglýsti eftir notuðum púslum á Facebook. Púslin sem auglýst var eftir átti að nota í hringekjuvinnu á yngsta stigi og hefur þessi rausnalega gjöf nýst vel í það verkefni. Við kunnum Gísla bestu þakkir fyrir púslin góðu!...

Lesa meira
Dagur stærðfræðinnar 3. febrúar
13. febrúar 2017
Dagur stærðfræðinnar 3. febrúar

Föstudagurinn 3. febrúar var dagur stærðfræðinnar. Í tilefni af honum voru ýmis óhefðbundin verkefni unnin í stærðfræðitímum. Á yngsta stigi unnu  nemendur í aldursblönduðum hópum í skemmtilegri stærðfræðihringekju þar sem m.a. var farið í kastleiki og bingó og unnið með peninga og form. Í eldri bekkjum var unnið með stærðfræði í gegnum spil og ung...

Lesa meira
  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus