Fréttir

Skertur kennsludagur vegna fundar í Stapa
31. janúar 2017
Skertur kennsludagur vegna fundar í Stapa

Í dag 31. janúar hafa bæjaryfirvöld skipulagt fund með öllum kennurum í grunnskólum Reykjanesbæjar. Fundurinn hefst kl. 13:30 og því lýkur formlegri kennslu kl. 13:10. Frístundaskólinn er opinn fyrir þau börn sem þar eru skráð....

Lesa meira
Starfsdagur 11. janúar og matsdagur 17. janúar
9. janúar 2017
Starfsdagur 11. janúar og matsdagur 17. janúar

Kæru foreldrar/forráðamenn.   Gleðilegt nýtt ár og bestu þakkir fyrir góða samvinnu og ánægjulegar samverustundir á því gamla.   Nú er seinni helmingur skólaársins framundan og öll hjól farin að snúast. Miðvikudagurinn 11. janúar er starfsdagur hjá okkur og nemendur því í fríi og frístundaskólinn lokaður. Þriðjudaginn 17. janúar er svo matsdagur þa...

Lesa meira
Jólakveðja
20. desember 2016
Jólakveðja

Við sendum nemendum okkar, fjölskyldum þeirra og velunnurum skólans okkar bestu jóla og nýjárskveðjur og þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða. Hittumst glöð og hress á nýju ári. Jólakveðja Starfsfólk Heiðarskóla   Skólastarf hefst aftur þriðjudaginn 3. janúar samkvæmt stundaskrá....

Lesa meira
Jólahátíð 20. desember og jólafrí
19. desember 2016
Jólahátíð 20. desember og jólafrí

Þriðjudaginn 20. desember verður hin árlega jólaskemmtun í skólanum. Líkt og í fyrra verða allir nemendur saman í íþróttahúsinu. Þar munu nemendur í 7. bekk leika jólaguðspjallið, nemendur flytja söng– og tónlistaratriði og svo verður að sjálfsögðu dansað í kringum jólatréð við undirleik Guðmundar Hermannssonar. Að því loknu fer hver bekkur til sin...

Lesa meira
4. bekkur söng fyrir heimlisfólkið á Hlévangi
19. desember 2016
4. bekkur söng fyrir heimlisfólkið á Hlévangi

Nemendur úr 4. bekk heimsóttu heimilisfólkið á Hlévangi föstudaginn 16. desember.  Farið var með strætisvagni áleiðis um morguninn og genginn síðasti spölurinn.  Krakkarnir sungu nokkur jólalög í matsalnum þar sem hópur heimilisfólks hafði komið sér fyrir til að hluta á sönginn. Það var ekki annað að sjá og heyra en að áhorfendur kynnu vel að meta ...

Lesa meira
Fréttabréf Heiðarskóla komið út!
16. desember 2016
Fréttabréf Heiðarskóla komið út!

Í nýju Fréttabréfi Heiðarskóla er að finna samantekt á helstu fréttum haustsins. Það má lesa sem veftímarit með því að smella hér eða sem pdf skjal með því að smella á myndina....

Lesa meira
Jólaskákmót í Gerðaskóla
14. desember 2016
Jólaskákmót í Gerðaskóla

Jólaskákmót Samsuð og Krakkaskák 2016 verður haldið laugardaginn 17. desember kl. 13.00-16.00 í Gerðaskóla í Garði....

Lesa meira
Hreystikeppni Heiðarskóla
6. desember 2016
Hreystikeppni Heiðarskóla

Skólahreystikeppni Heiðarskóla fór fram í íþróttasal skólans í dag 6. desember. Eins og endranær var spennustig keppenda hátt og stuðningur nemenda í 5.-10. bekk góður. Hópur nemenda úr 8., 9. og 10. bekk spreytti sig á hreystiþrautunum og stóðu þeir sig allir með stakri prýði. Fjórir nemendur báru sigur úr býtum. Ástrós Elísa Eyþórsdóttir í 9. ÞE ...

Lesa meira
Skertur kennsludagur á föstudaginn og aðventudagskrá
22. nóvember 2016
Skertur kennsludagur á föstudaginn og aðventudagskrá

Föstudagurinn 25. nóvember er skertur kennsludagur og mun skóla ljúka kl. 11.10. Nemendur í 1.-4. bekk geta borðað hádegismatinn sinn áður en þeir fara heim eða í frístundaskólann. Rétt er að taka fram að foreldrar nemenda í 5.-10. bekk greiða ekki fyrir máltíðir á skertum dögum.    Þennan dag ætlum við að hleypa jólaandanum inn í skólann okkar...

Lesa meira
Jólaföndur FFHS
21. nóvember 2016
Jólaföndur FFHS

Fimmtudaginn 24. nóvember verður hið árlega jólaföndur Foreldrafélags Heiðarskóla frá kl. 17.00 til 19.00 á sal skólans. Boðið verður upp á ýmis konar trédót til málunar og laufabrauð. Á staðnum verður málning fyrir trédótið og eitthvað af penslum, en endilega takið með ykkur pensla svo allt gangi vel fyrir sig. Einnig verður boðið upp á laufabrauð...

Lesa meira
  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus