13. febrúar 2017

Íþróttadagar 13.-16. febrúar

Þessa vikuna standa íþróttadagar yfir hjá okkur og lýkur þeim með keppni 10. bekkinga og starfsfólks eftir hádegi á fimmtudaginn. Allir nemendur fá tvær íþróttastundir þar sem þeir fara í ýmsa skemmtilega leiki með samliggjandi árgöngum. Nemendur hafa verið hvattir til að koma í þægilegum fötum sem heppileg eru til hreyfingar þann dag sem íþróttastundin þeirra er. Tveir árgangar deila sömu íþróttastund og munu nemendur því ekki geta haft fataskipti eða farið í sturtu í klefunum vegna fjölmennis.

Skipulag daganna er sem hér segir:

Mánudagur 13/2

8.10-9.30 - 9. og 10. bekkur: Gryfjubolti - liðakeppni

9.50-11.10 - 1. og 2. bekkur: Eltingaleikir og dans

12.30-13.50 - 5. og 6. bekkur: Körfuskotbolti

Þriðjudagur 14/2

9.50-11.10 - 3. og 4. bekkur: Survivor

Fimmtudagur 15/2

9.50-11.10 - 7. og 8. bekkur: Gryfjubolti

12.30-13.50: 10. bekkur og starfsmenn keppa!

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan