Fréttir
Nýr körfuboltavöllur vígður
Lengi hefur verið beðið eftir að nýtt undirlag verði lagt og nýjar körfur settar upp á körfuboltavöllinn við innganginn í íþróttahúsið. Í vikunni var nýi körfuboltavöllurinn tilbúinn, mörgum nemendum til mikillar gleði. Í dag var þessi flotti völlur svo vígður í roki og rigningu en enginn lét það á sig fá. Í frímínútum söfnuðust nemendur saman í kr...
Lesa meiraHlupu samtals 1887,5 km í Heiðarskólahlaupi!
Dagana 14. og 18. september fór Norræna skólahlaupið fram en það kjósum við að kalla Heiðarskólahlaupið. 384 nemendur af 417 hlupu samtals 1887,5 km í hlaupinu. Höfðu nemendur val um að ganga/hlaupa 1 - 4 hringi í skólahverfinu eða 2,5 - 10 km. 140 nemendur fóru 2,5 km 151 nemandi fór 5 km 59 nemendur fóru 7,5 km 34 nemendur fóru 10 km A...
Lesa meiraÁrsskýrsla foreldrafélags Heiðarskóla
Ársskýrsla FFHS - foreldrafélags Heiðarskóla fyrir skólaárið 2016 - 2017 hefur verið birt á heimasíðu skólans. Hana má finna hér....
Lesa meiraÞorgrímur hvatti til ástar á lífinu
Þorgrímur Þráinsson kom í sína árlegu heimsókn til nemenda í 10. bekk í dag mánudaginn 25. september. Hann hélt fyrir þá fyrirlestur sem ber heitið Verum ástfangin af lífinu! Með honum hvatti hann nemendur m.a. til að setja sér markmið á hinum ýmsu sviðum lífs síns og að þeir legðu sig fram við að vera góðar manneskjur sem gefa af sér. Þannig yrðu ...
Lesa meiraAlþjóðadagur læsis er í dag 8. september
Alþjóðadagur læsis er í dag 8. september. Sameinuðu þjóðirnar gerðu þann dag að alþjóðadegi læsis árið 1965 í því skyni að vekja athygli á mikilvægi læsis fyrir líf og starf. Góð lestrarfærni er undirstaða ævináms og eitt það mikilvægasta sem einstaklingur þarf að tileinka sér til þess að geta tekið virkan þátt í mannlegu samfélagi. Við erum allt...
Lesa meiraMarkmiðasetningardagur 13. september
Miðvikudagurinn 13. september er markmiðasetningardagur í Heiðarskóla. Þann dag eiga kennarar, nemendur og foreldrar/forráðamenn samtal um markmið nemenda fyrir skólaárið og fleira. Frístundaskólinn er þá opinn frá kl. 8.10 - 16.00. Skráning samtalstíma fer fram á Mentor. Hefst hún að morgni föstudagsins 8. september og lýkur að kvöldi mánudagsin...
Lesa meiraSetning Ljósanæturhátíðar
Á fimmtudaginn tökum við þátt í setningu Ljósanæturhátíðar við Myllubakkaskóla. Nú sem endranær hvetjum við nemendur okkar og starfsfólk til að mæta í einhverju bláu þann daginn en blár er skólaliturinn okkar. Gengið verður frá Heiðarskóla upp úr kl. 10.00 og brýnt er að nemendur séu klæddir eftir veðri þennan dag sem alla skóladaga. Grunnskólab...
Lesa meiraHeiðarskóli er hnetulaus skóli vegna bráðaofnæmis
Frá og með þessu skólaári er Heiðarskóli hnetulaus skóli og má því enginn koma með nesti sem inniheldur hnetur. Dæmi um slíkt er: hnetujógúrt, abt mjólk með hnetumúsli, brauð með hnetusmjöri, hnetur í poka, alls kyns orkustykki, sumar brauðtegundir, morgunkorn og fleira. Brýnt er að tekið sé tillit til þeirra sem hafa bráðaofnæmi fyrir hnetu...
Lesa meiraGjaldfrjáls námsgögn í skólum Reykjanesbæjar
Frá og með skólaárinu 2017 - 2018 mun Reykjanesbær sjá grunnskólabörnum fyrir nauðsynlegum námsgögnum, að undanskildum íþrótta- og sundfatnaði, skólatöskum og nestisílátum. Fyrir komandi skólaár eru því engir innkaupalistar gefnir út. Skólagögnin verða að mestu geymd í skólanum og því þurfa foreldrar að sjá til þess að heima séu til helstu skriffær...
Lesa meiraSkólasetning og skólabyrjun
Þriðjudagur 22. ágúst: Kl. 09.00 mæta nemendur í 2., 3. og 4. bekk kl. 10.00 mæta nemendur í 5., 6. og 7. bekk kl. 11.00 mæta nemendur í 8., 9. og 10. bekk. Á skólasetningunni verður flutt stutt ávarp en síðan er haldið í stofur með umsjónarkennara. Þar fara kennarar yfir helstu áherslur í námi og kennslu. Farið verður yfir námsmarkmið, ver...
Lesa meira
-1.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)
-1.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)
-1.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)






.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)





