24. ágúst 2017

Heiðarskóli er hnetulaus skóli vegna bráðaofnæmis

Frá og með þessu skólaári er Heiðarskóli hnetulaus skóli og má því enginn koma með nesti sem inniheldur hnetur. Dæmi um slíkt er: hnetujógúrt, abt mjólk með hnetumúsli, brauð með hnetusmjöri, hnetur í poka, alls kyns orkustykki, sumar brauðtegundir, morgunkorn og fleira. 
 
Brýnt er að tekið sé tillit til þeirra sem hafa bráðaofnæmi fyrir hnetum því það getur valdið mjög slæmum og hættulegum ofnæmisviðbrögðum. Við biðjum ykkur því að gæta þess að börnin komi með hnetufrítt nesti í skólann. Það sama gildir um t.d. bakkelsi á árshátíðum eða á bekkjarskemmtunum.
 
  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan