7. september 2017

Markmiðasetningardagur 13. september

Miðvikudagurinn 13. september er markmiðasetningardagur í Heiðarskóla. Þann dag eiga kennarar, nemendur og foreldrar/forráðamenn samtal um markmið nemenda fyrir skólaárið og fleira. Frístundaskólinn er þá opinn frá kl. 8.10 - 16.00.
 
Skráning samtalstíma fer fram á Mentor. Hefst hún að morgni föstudagsins 8. september og lýkur að kvöldi mánudagsins 11. september. Leiðbeiningar um hvernig skrá á tíma má finna hér: https://www.youtube.com/watch?v=mEFYnJhJAsM
 
  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan