Fréttir
Heilabrot á degi stærðfræðinnar
Föstudagurinn 6. febrúar var dagur stærðfræðinnar. Í tilefna af honum bjuggu stærðfræðikennarar á unglingastigi til skemmtilegar þrautir, sem allir nemendur skólans fengu að glíma við. Skemmtileg stemmning myndaðist í kringum þessar þrautir og var stöðug umferð í matsalinn þar sem þrautunum var stillt upp....
Lesa meiraLátið drauminn rætast!
Þorgrímur Þráinsson kom í sína árlegu heimsókn til okkar fimmtudaginn 5. febrúar. Hann hélt fyrirlestur fyrir nemendur í 10. bekk sem ber heitið Láttu drauminn rætast! Með honum hvatti hann nemendur til að setja sér markmið á hinum ýmsu sviðum lífs síns svo hjól lífsins myndi snúast á eðlilegan hátt. Þannir yrðu þeir sáttari við sjálfa sig og hamin...
Lesa meiraLandsliðsmaðurinn Logi Gunnarsson heimsótti 3. bekk
Í dag föstudag kom Logi Gunnarsson landsliðsmaður í körfubolta í heimsókn til okkar 3. bekk. Hann sagði frá sjálfum sér. Logi lagði ríka áherslu á mikilvægi þess að setja sér markmið og vera duglegur í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur því þannig næst árangur. Lagði hann sérstaka áherslu á mikilvægi lesturs og las söguna Gilitrutt fyrir börnin....
Lesa meiraMatsdagur þriðjudaginn 20. janúar
Þriðjudagurinn 20. janúar er matsdagur í Heiðarskóla. Þann dag eiga kennarar, nemendur og foreldrar/forráðamenn samtal um námslega stöðu nemenda. Til umræðu verða m.a. niðurstöður úr lokamatsþáttum haustannar og staðan í ákveðnum lykihæfniþáttum. Markmiðssetning haustannar verður jafnframt yfirfarin, ásamt sjálfsmati og ný markmið sett. Foreldrar/f...
Lesa meiraRafrænar tímabókanir fyrir matsdag þann 20. janúar
Opnað hefur verið fyrir rafrænar tímabókanir fyrir matsdaginn þann 20. janúar. Til að bóka viðtalstíma hjá umsjónarkennara er farið inn á mentor, fjölskylduvefur valinn og hægra megin á skjánum birtist möguleikinn til þess að bóka foreldraviðtal. Lokað verður fyrir bókanir í lok dagsins 18. janúar....
Lesa meiraSkipulagsdagur kennara 8. janúar
Fimmtudagurinn 8. janúar er skipulagsdagur kennara. Þennan dag eru nemendur í fríi og frístundaskólinn lokaður....
Lesa meiraJólakveðja
Við sendum nemendum okkar, fjölskyldum þeirra og velunnurum skólans okkar bestu jóla og nýjárskveðjur og þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða. Hittumst glöð og hress á nýju ári. Jólakveðja Starfsfólk Heiðarskóla Skólastarf hefst aftur mánudaginn 5. janúar samkvæmt stundaskrá....
Lesa meiraFréttabréf Heiðarskóla komið út
Nýtt fréttabréf Heiðarskóla er komið út. Í því eru ýmsar fréttir úr skólastarfi haustannarinnar og dagskrá jólahátíðar. Smellið á myndina til þess að lesa bréfið í pdf skjali eða lesið það á tímaritsformi á þessari slóð: http://issuu.com/heidarskolibj/docs/desember_2014/0...
Lesa meiraVegna veðurs - heimferð úr skóla
Kæru foreldrar/forráðamenn. Þar sem veður er slæmt gerum við ráð fyrir að börn í 1. - 5. bekk verði sótt að loknum skóladegi eins og kom fram í pósti sem sendur var á foreldra þeirra barna. Ef börnin eiga heima mjög nálægt skólanum og eiga að ganga heim óskum við eftir því að ritari skólans verði látinn vita í síma 420 4500. Bestu kveðjur, ...
Lesa meiraSkólahreystikeppni Heiðarskóla
Skólahreystikeppni Heiðarskóla fór fram í íþróttasal skólans eftir hádegi í dag. Eins og endranær var spennustig keppenda hátt og stuðningur nemenda í 5.-10. bekk góður. Myndarlegur hópur nemenda úr 9. og 10. bekk spreytti sig á hreystiþrautunum og stóðu þeir sig allir með stakri prýði. Fjórir nemendur báru sigur úr býtum og munu þeir líklega skipa...
Lesa meira
-1.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)
.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)
.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)


.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)
.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)





