Fréttir

Skólahreystikeppni miðstigs
12. apríl 2016
Skólahreystikeppni miðstigs

Þriðjudaginn 12. apríl öttu 29 nemendur í 5.-7. bekk kappi í skólahreystiþrautum Heiðarskóla. Líf og fjör var í íþróttasalnum og var mikill kraftur bæði í þátttakendum og áhorfendum. Skólamet voru slegin og hvaðeina! Vaskar stúlkur og tápmiklir drengir spreyttu sig á þrautunum. Ásdís Birta í 5.HT gerði hvorki meira né minna en 63 armbeygjur og bekk...

Lesa meira
Flottur árangur í stærðfræðikeppni grunnskólanemenda
1. apríl 2016
Flottur árangur í stærðfræðikeppni grunnskólanemenda

Rúnar Bárður, Bergur Daði og Svava Rún. Á myndina vantar Dagnýju Höllu Stærðfræðikeppni grunnskólanemenda fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja 8. mars s.l.  Nemendur úr 8.-10. bekk í öllum grunnskólum á Suðurnesjum fá að taka þátt í þessari keppni. Frá Heiðarskóla fóru 13 nemendur en alls keppti 134 nemandur. Verðlaunaafhending fór fram fimmtu...

Lesa meira
Mætum í bláu á degi einhverfunnar!
30. mars 2016
Mætum í bláu á degi einhverfunnar!

Laugardagurinn 2. apríl er alþjóðlegur dagur einhverfunnar. Dagurinn er gjarnan kallaður blái dagurinn og til að vekja athygli á honum hvetjum við nemendur okkar og starfsfólk til að mæta í einhverju bláu föstudaginn 1. apríl.  Nánari upplýsingar um einhverfu er að finna á einhverfa.is og greining.is...

Lesa meira
Gleðilega páska!
18. mars 2016
Gleðilega páska!

Páskafrí er nú hafið hjá nemendum og starfsfólki Heiðarskóla. Skóli hefst aftur þriðjudaginn 29. mars samskvæmt stundaskrám. Gleðilega páska!...

Lesa meira
Nýtt fréttabréf Heiðarskóla!
18. mars 2016
Nýtt fréttabréf Heiðarskóla!

Nýtt fréttabréf Heiðarskóla er komið út. Í því eru ýmsar fréttir af skólastarfi vorannar. Smellið á myndina til þess að lesa bréfið í pdf skjali eða lesið það á tímaritsformi á þessari slóð: http://issuu.com/heidarskolibj/docs/mars_2016?workerAddress=ec2-54-242-94-168.compute-1.amazonaws.com...

Lesa meira
Nýtt fréttabréf Heiðarskóla!
18. mars 2016
Nýtt fréttabréf Heiðarskóla!

Nýtt fréttabréf Heiðarskóla er komið út. Í því eru ýmsar fréttir úr skólastarfi vorannar. Smellið á myndina til þess að lesa bréfið í pdf skjali eða lesið það á tímaritsformi á þessari slóð: http://issuu.com/heidarskolibj/docs/mars_2016?workerAddress=ec2-54-242-94-168.compute-1.amazonaws.com...

Lesa meira
118.000 krónur til Krabbameinsfélags Suðurnesja!
18. mars 2016
118.000 krónur til Krabbameinsfélags Suðurnesja!

Fimmtudaginn 17. mars var sérstök styrktarsýning á leikritinu Frelsi sem nemendur í 8. og 10. bekk hafa sýnt á sal skólans að undanförnu. Leikarahópurinn sjálfur lagði það til við leikstjórana sína að láta ágóðann af aukasýningu renna til Krabbameinsfélags Suðurnesja eins og gert hefur verið undanfarin ár. Fullur salur fólks á öllum aldri skemmti s...

Lesa meira
Styrktarsýning á söngleiknum Frelsi
16. mars 2016
Styrktarsýning á söngleiknum Frelsi

Föstudaginn 11. mars frumsýndu nemendur á unglingastigi Heiðarskóla söngleikinn Frelsi í leikstjórn Guðnýjar Kristjánsdóttur og Maríu Óladóttur.  Leikritið var sýnt fyrir fullum sal á mánudags og þriðjudagskvöld og nú hefur verið ákveðið að bæta við einni aukasýningu fimmtudaginn 17. mars. Allur ágóði sýningarinnar mun renna til Krabbameinsfélags S...

Lesa meira
Sundmót grunnskólanna
15. mars 2016
Sundmót grunnskólanna

Yngar liðið: Bartoz, Finnbogi, Andri, Guðný, Ásta, Eva og Stefán. Á myndina vantar Rakel Ýri Sundmót grunnskólanna var haldið þriðjudaginn 8. mars í sundlauginni í Laugardal.  Á mótinu voru 512 keppendur frá 34 skólum sem er metfjöldi á þessu móti.  Heiðarskóli sendi til keppni tvö lið, eitt lið í 5. – 7. bekk og annað í 8. – 10. bekk.  Alls kepp...

Lesa meira
Frelsi sett upp í annað sinn - almennar sýningar
15. mars 2016
Frelsi sett upp í annað sinn - almennar sýningar

Föstudaginn 11. mars, frumsýndu nemendur úr 8.-10. bekkjum Heiðarskóla söngleikinn Frelsi á árshátíð unglingadeildar skólans. Verkið er eftir Skagamennina Flosa Einarsson og Gunnar Sturlu Hervarsson og var síðast sett upp fyrir 6 árum, á 10 ára afmælisári skólans. Sló það rækilega í gegn og muna leikararnir sjálfir vel eftir sér sönglandi lögin með...

Lesa meira
  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus