1. apríl 2016

Flottur árangur í stærðfræðikeppni grunnskólanemenda

    Rúnar Bárður, Bergur Daði og Svava Rún. Á myndina vantar Dagnýju Höllu

Stærðfræðikeppni grunnskólanemenda fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja 8. mars s.l.  Nemendur úr 8.-10. bekk í öllum grunnskólum á Suðurnesjum fá að taka þátt í þessari keppni. Frá Heiðarskóla fóru 13 nemendur en alls keppti 134 nemandur.

Verðlaunaafhending fór fram fimmtudaginn 31. mars. Þar mættu 10 efstu í hverjum árgangi ásamt foreldrum sínum, stærðfræðikennurum og skólastjórnendum grunnskólanna. Allir sem voru boðaðir fengu viðurkenningarskjal. Íslandsbanki og Verkfræðistofa Suðurnesja gáfu verðlaunin. Verðlaun fyrir fyrsta sætið voru 20.000 kr, fyrir annað sætið 15.000 kr. og 10.000 kr. fyrir það þriðja. Auk þess fengu þrír efstu í 10. bekk grafískan vasareikni frá Verkfræðistofu Suðurnesja.

Það er skemst frá því að segja að allir nemendur okkar stóðu sig prýðilega vel en Bergur Daði Ágústsson var í 1. sæti í hópi nemenda í 9. bekk. Önnur úrslit okkar nemenda voru þessi: Í keppni 10. bekkinga var Dagný Halla Ágústsdóttir í 6.-10. sæti, í keppni 9. bekkinga var Svava Rún Sigurðardóttir í 6.-10. sæti og í keppni nemenda í 8. bekk var Rúnar Bárður Kjartansson í 4.-5. sæti. Við óskum keppendunum öllum innilega til hamingju þennan frábæra árangur!  

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan