Fréttir
Vetrarfrí 19. og 22. október
Vetrarfrí / Winter vacation / Ferie zimowe Föstudaginn 19. október og mánudaginn 22. október er vetrarfrí í Heiðarskóla. Enginn skóli er þessa daga og frístundaskólinn er lokaður, sem og skrifstofa skólans. Skóli hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 23. október. On Friday the 19th of October and Monday the 22nd of October there is a w...
Lesa meiraSigur í fótboltamóti grunnskólanna í Reykjanesbæ
Á dögunum fór fram knattspyrnumót grunnskólanna í Reykjanesbæ í flokki drengja. Lið Heiðarskóla mætti drengjunum úr Akurskóla í fyrsta leik og unnu þá naumlega 1 - 0. Heiðarskóladrengir unnu síðan öruggan sigur á liði Myllubakkaskóla 7 - 1 og mættu loks liði Holtaskóla í úrslitaleik. Skemmst er frá því að segja að okkar drengir báru sigur úr býtum ...
Lesa meiraBleiki dagurinn á morgun, föstudaginn 12. október
Föstudaginn 12. október verður bleikur dagur í Heiðarskóla en októbermánuður hefur verið helgaður baráttunni gegn krabbameinum hjá konum. Til að sýna baráttunni stuðning hvetjum við starfsfólk og nemendur til að mæta í skólann í einhverju bleiku þennan dag....
Lesa meiraMentor app fyrir notendur Heiðarskóla
Kæru foreldrar/forráðamenn. Nú er komið Mentor app fyrir nemendur og aðstandendur og Heiðarskóli er einn af þremur skólum sem fær þessa tengningu núna til að byrja með. Við hvetjum ykkur til að sækja appið sem mun auðvelda ykkur að fylgjast með því sem kemur frá skólanum inn á Mentor. Myndbandið sem má finna á þessari slóð: https://youtu.be/U7vx...
Lesa meiraMarkmiðasetningardagur 3. október
Miðvikudagurinn 3. október er markmiðasetningardagur í Heiðarskóla. Þann dag eiga kennarar, nemendur og foreldrar/forráðamenn í 2. - 10. bekk samtal um markmið nemenda fyrir skólaárið og fleira. Foreldrar barna í 1. bekk eru boðaðir á lestrarfræðslu á sal skólans kl. 8.15 - 8.45. Áhersla er lögð á að allir nemendur í 1. bekk eigi a.m.k. einn fulltr...
Lesa meiraForeldrafærninámskeið á vegum fræðslusviðs Reykjanesbæjar
Fræðslusvið stendur fyrir fjórum mismunandi foreldrafærninámskeiðum skólaárið 2018/2019. Líkt og undanfarin mun sviðið bjóða upp á Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar (tvö á haustönn og tvö á vorönn) sem er hugsað fyrir foreldra barna á aldrinum 0-6 ára með áherslu á að kenna barninu færni sem líkleg er að nýtast því til frambúðar, Uppeldi bar...
Lesa meiraSetning Ljósanæturhátíðar í fyrsta sinn utan skólatíma
Miðvikudaginn 29. ágúst 2018 kl. 16:30 verður Ljósanæturhátíðin sett í fyrsta sinn utan skólatíma. Foreldrar eru hvattir til að koma með börnunum sínum á þessa ánægjulegu stund. Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar spilar frá kl. 16:00. Dagskrá: • Gunnhildur Gunnarsdóttir forstöðumaður Fjörheima, býður gesti velkomna. • Kjartan ...
Lesa meiraHeiðarskóli er hnetulaus skóli
Við minnum á að Heiðarskóli er hnetulaus skóli og má því ekki koma með nesti sem inniheldur hnetur. Dæmi um slíkt er: hnetujógúrt, abt mjólk með hnetumúsli, brauð með hnetusmjöri, hnetur í poka, alls kyns orkustykki, sumar brauðtegundir, morgunkorn og fleira. Brýnt er að tekið sé tillit til þeirra sem hafa bráðaofnæmi fyrir hnetum því það ge...
Lesa meiraTil foreldra verðandi 1. bekkinga
Bréf voru send á heimili barna í 1. bekk fyrir helgi þar sem fram kemur hvenær samtalstími við umsjónarkennara verður á morgun, miðvikudag. Við höfum fengið upplýsingar um að bréfin hafi ekki enn borist og svo virðist sem ekki sé hægt að tryggja að þau berist í dag. Kristín Sesselja, deildarstjóri yngra stigs, mun því hringja í foreldra barna í 1. ...
Lesa meiraTil foreldra verðandi 1. bekkinga
Bréf voru send á heimili barna í 1. bekk fyrir helgi þar sem fram kemur hvenær samtalstími við umsjónarkennara verður á morgun, miðvikudag. Við höfum fengið upplýsingar um að bréfin hafi ekki enn borist og svo virðist sem ekki sé hægt að tryggja að þau berist í dag. Kristín Sesselja, deildarstjóri yngra stigs, mun því hringja í foreldra barna í 1. ...
Lesa meira


.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)










