Fréttir
Úrslit stærðfræðikeppni grunnskólanemenda
Stærðfræðikeppni grunnskólanema fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þann 8. mars s.l. Þátttakendur voru 142 úr öllum grunnskólum á Suðurnesjum. Verðlaunaafhendingin fór svo fram þriðjudaginn 9. apríl. Þar mættu 10 efstu í hverjum árgangi ásamt foreldrum sínum, stærðfræðikennurum og skólastjórnendum grunnskólanna. Allir sem voru boðaðir fengu viðu...
Lesa meiraNýr skólastjóri
Eins og flestum er kunnugt lét Gunnar Þór af störfum sem skólastjóri Heiðarskóla 31. mars sl. eftir tólf ára farsælt starf. Sóley Halla var ráðin skólastjóri frá og með 1. apríl en hún hefur sl. tíu ár starfað sem aðstoðarskólastjóri við skólann. Búið er að auglýsa stöðu aðstoðarskólastjóra og verður mjög fljótlega gengið frá ráðningu hans. Starfs...
Lesa meiraAlmennar sýningar á leikritinu „Í sambandi"
Leikritið Í sambandi hlaut frábærar viðtökur viðstaddra þegar það var frumsýnt á árshátíð unglingastigs þann 20. mars sl. Leikritið kallast á frummálinu Connected og er eftir Don Zolidis en það var þýtt og staðfært auk þess sem dansi og söng var komið fyrir í handritinu. Það fjallar um þau óskráðu lög og reglur sem gilda þegar hefja á leitina að k...
Lesa meiraSíðasti skóladagur Gunnars sem skólastjóri
Í dag var síðasti skóladagur Gunnars sem skólastjóri. Hann fór heldur meyr í alla bekki, þakkaði fyrir viðkynnin, samveruna og samstarfið. Honum hafa borist alls kyns kveðjur síðustu daga eins sjá má á meðfylgjandi myndum. Í gær afhentu t.d. krakkarnir í frístund honum páskatré og í dag fékk hann síðasta óvænta glaðninginn af mörgum frá nemendum í ...
Lesa meiraPáskafrí
Páskafrí hefst að loknum skóladegi í dag, föstudaginn 22. mars. Kennsla hefst miðvikudaginn 3. apríl samkvæmt stundaskrá. Gleðilega páska! Skólastjórnendur...
Lesa meiraÁnægjuleg árshátíð
Árshátíð Heiðarskóla var haldin í dag þar sem flestir nemendur skólans komu fram á sviði. Hátíðin var, eins og venja er, þrískipt. Sýnd voru fjölbreytt atriði á árshátíðum yngsta- og miðstigs en leikritið „Í sambandi" var frumsýnt á unglingastigi. Að hátíðunum loknum gæddu nemendur, foreldrar og starfsfólk sér á veitingum og nutu samverunnar. Fleir...
Lesa meiraÁrshátíð Heiðarskóla
Árshátíð Heiðarskóla verður haldin miðvikudaginn 20. mars. Hátíðin er þrískipt og eru tímasetningar eftirfarandi: 1. - 3. bekkur - Mæting 8.10 Hátíð hefst 8:304. - 7. bekkur - Mæting 9:30 Hátíð hefst 10:008. - 10. bekkur - Mæting 12:15 Hátíð hefst 12:30 Allir bekkir frá 1. -7. bekk verða með atriði á sviði og síðan sýna nemendur úr 8. - 10. bekk...
Lesa meiraFréttabréf
Nýtt fréttabréf Heiðarskóla er komið út. Í því eru m.a. fjallað um skólastjórabreytingar, skákmót, Skólahreysti, dagskrá árshátíðar og fleira. Smellið á myndina til þess að lesa bréfið....
Lesa meiraFiskaþema í 7. JP
Í viku 10 fengu nemendur í 7. JP þrjá kennaranema frá menntavísindasviði Háskóla Íslands og voru þær með bekknum í tvær vikur. Fyrri vikan fór í þemanám og seinni vikan fór í hefðbundna kennslu með árshátíðarívafi. Þemanámið var unnið út frá náttúrufræðibókinni Lífríki í sjó og var áhersla lögð á fiskana í sjónum nærri Íslandi. Nemendur máluðu himi...
Lesa meiraStóra upplestrarkeppnin
Fimmtudaginn 7. mars fór fram lokahátíð Stóru upplestrarkeppn- innar hjá grunnskólum Reykjanesbæjar og Grunnskóla Sandgerðis. Keppnin fór fram í DUUS-húsum og og kepptu tveir upplesarar úr 7. bekk frá hverjum skóla, alls 14 nemendur. Fulltrúar Heiðarskóla voru þau Elma Rún Kristinsdóttir 7.FÓ og Svanur Þór Mikaelsson 7.JP. Þau stóðu sig alveg frábæ...
Lesa meira



.jpg?300x317?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)





