Fréttir
Rúnar Bárður skákmeistari Heiðarskóla!
Föstudaginn 30. maí var hið árlega skákmót Heiðarskóla haldið. 20 nemendur hófu leik og tefldar voru 4 umferðir. Að þeim loknum voru 5 þátttakendur efstir og þurfti að tefla hraðskák til þess að skera úr um 4 sætið milli þeirra Sigursteins og Einar Sveins sem báðir höfðu 2,5 vinning. Sigursteinn sigraði skákina og komst þar með í undanúrslit ásamt ...
Lesa meiraHeiðarskólasigur í Skólahreysti 2014!
Lið Heiðarskóla, skipað þeim Andra Má, Arnóri Elí, Elmu Rósnýju og Kötlu Rún, vann frækinn sigur í úrslitakeppni Skólahreystis í Laugardalshöll föstudaginn 16. maí. Mikil stemning var í höllinni og var liðið okkar dyggilega stutt af stórum hópi nemenda, kennara og fjölskyldumeðlima. Alls tóku tólf skólar þátt í þessari æsispennandi úrslitakeppni. L...
Lesa meiraHafragrautur í morgunmat
Frá og með föstudeginum 16. maí býður Reykjanesbær nemendum í 8. - 10. bekk hafragraut í frímínútum kl. 09.30 - 09.50 og frá og með mánudeginum 19. maí verður hafragrautur í boði fyrir alla nemendur skólans kl. 07.50 - 08.05. Þessi grautur er ókeypis fyrir þá sem hann snæða....
Lesa meiraVorhátíð
Í dag, fimmtudaginn 15. maí, verður vorhátíð FFHS haldin klukkan 17:00-19:00 í Heiðarskóla. Hoppukastali og önnur leiktæki verða á staðnum og munu meðlimir úr Sirkus Íslands mæta og taka nokkur atriði. Grillið verður á staðnum og geta allir grillað pylsur eða annað góðgæti en Foreldrafélagið býður upp á sósur og meðlæti. Seldar verða pylsur og pyls...
Lesa meiraSkólanum afhentur veglegur styrkur
Eiríka Ýr Sigurðardóttir, fyrrverandi nemandi Heiðarskóla, heimsótti okkur í upphafi vikunnar og færði skólanum gjafabréf að verðmæti 30.000 kr. Hún var hér sem fulltrúi Verkfræðistofu Suðurnesja sem veitir þennan veglega styrk. Peningagjöfin er ætluð til kaupa á stærðfræðigögnum fyrir yngri bekki skólans. Það var virkilega gaman að fá Eiríku og fö...
Lesa meiraADHD samtökin með fyrirlestur og spjallfund á morgun
Kynningarfundur ADHD samtakanna verður haldinn í Reykjanesbæ þriðjudaginn 29. apríl 2014 kl. 14:30 í sal Holtaskóla við Sunnubraut, í samvinnu við Velferðarráðuneytið. Fundurinn er ætlaður starfsfólki leik-, grunn- og framhaldsskóla, sérfræðingum í skóla- og félagsþjónustu og öllum þeim sem starfa með börnum, ungmennum eða fullorðnum með ADHD. Fore...
Lesa meiraFrábær árangur í Stærðfræðikeppni grunnskólanna!
Stærðfræðikeppni grunnskólanema fór fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja 11. mars s.l. Nemendur úr 8.-10. bekk í öllum grunnskólum á Suðurnesjum fá að taka þátt í þessari keppni. Frá Heiðarskóla fóru 16 nemendur en alls voru þátttakendur 149. 10 efstu nemendurnir í hverjum árgangi voru boðaðir á hátíðarstund sem fram fór í Fjölbrautaskólanum í gær. ...
Lesa meiraStuttmyndadagar unglingastigs
Nú standa yfir stuttmyndadagar hjá nemendum á unglingastigi. Vinnan hófst í gær en þá var nemendum skipt í 10-12 manna hópa innan hvers árgangs. Í dag hafa nemendur verið að taka upp efni fyrir þriggja mínútna myndbönd sem verða öll sýnd á frumsýningarhátíð eftir hádegi á föstudaginn. Þema daganna er „Leyndarmál". Þetta er tilraun skólans til að sv...
Lesa meiraNýtt fréttabréf!
Nýtt fréttabréf Heiðarskóla er komið út. Í því eru ýmsar fréttir af skólastarfi vorannar. Smellið á myndina til þess að lesa bréfið í pdf skjali eða á tímaritsformi á þessari slóð: http://issuu.com/heidarskolibj/docs/april2014...
Lesa meiraFrábær árangur í Boðsundskeppni grunnskólanna!
Boðsundskeppni grunnskólanna var haldin í Laugardalslauginni í gær, þriðjudaginn 8. apríl. Keppt var í tveimur aldursflokkum, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk og fóru þær Elín og Helena, sundkennarar, með lið í báðum flokkum. Alls tók 21 skóli þátt í þessu móti sem Sundsamband Íslands heldur. Nemendur okkar stóðu sig afbragðs vel og varð liðið sem skipað ...
Lesa meira
-1.jpg?w=640&h=420&mode=crop&scale=both)












