Fréttir
Hugvitsdagur
Föstudagurinn 28. febrúar var hugvitsdagur Heiðarskóla en þá voru nemendur skólans í hinum ýmsu verkefnum sem reyndu á sköpun, hugmyndaflug, samvinnu og fleira. Nemendur yngsta stigs fengu að velja sér stöðvar t.d. að búa til slönguspil, þrautabraut í íþróttahúsi, tefla, hanna og vinna ýmislegt með pappakössum, búa til farartæki og kubba. Nemendur ...
Lesa meiraÖskudagur 26. febrúar
Öskudagur verður með hefðbundnu sniði í Heiðarskóla. Allir nemendur mæta í sínar heimastofur kl. 8.10 og eru þeir hvattir til að koma í öskudagsbúningum. Á dagskrá verða m.a. draugahúsferðir fyrir þá sem vilja, dans í íþróttasal, spil og leikir. Þetta er skertur nemendadagur og mun því skipulögðu skólastarfi ljúka kl. 11.10. Nemendur í 1. - 4. bekk...
Lesa meiraSigur í Gettu enn betur, spurningakeppni grunnskólanna
Gettu enn betur lið Heiðarskóla stóð sig ákaflega vel í spurningakeppni grunnskólanna í Reykjanesbæ sem haldin var í Njarðvíkurskóla þriðjudaginn 11.febrúar. Þau Júlía Rán Árnadóttir og Sólon Siguringason í 9. bekk og Snævar Ingi Sveinsson í 10. bekk gerðu sér lítið fyrir og báru sigur úr býtum þegar þau unnu lið Akurskóla í úrslitum. Við óskum þe...
Lesa meiraSkólahald fellur niður föstudaginn 14. febrúar / Ze względu na złą pogodę !
Í ljósi þess að gefin hefur verið út rauð viðvörun fyrir okkar landssvæði fellur allt skólahald í leikskólum og grunnskólum Reykjanesbæjar niður á morgun, föstudaginn 14. febrúar. Sama gildir fyrir Tónlistarskóla Reykjanesbæjar....
Lesa meiraTilkynning vegna veðurs föstudaginn 14. febrúar
Þar sem veðurspá er mjög slæm fyrir morgundaginn ( föstudaginn 14.febrúar) þá biðjum við foreldra/forráðamenn að skoða eftirfarandi verklagsreglur grunnskóla við óveðri. Þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á Suðurnesjum fylgjast Lögreglan og Almannavarnir gaumgæfilega með, hafa samstarf við skólana og gefa út viðvaranir til almenni...
Lesa meiraPolska szkola / Pólskur móðurmálsskóli
Nowa Szkoła Języka Polskiego jako Ojczystego prowadzi zajęcia na drugi semestr 2020 w Myllubakkaskóli w każdą sobotę. Urząd Miasta Reykjanesbaer zachęca rodziców dzieci polskiego pochodzenia do uczestnictwa w tej szkole. Szkoła jest otwarta dla wszystkich i nieodpłatna. W celu dokonania zapisu lub otrzymania dalszych informacji można się zwrócic po...
Lesa meiraMatsdagur 4. febrúar
Þriðjudaginn 4. febrúar er matsdagur í Heiðarskóla. Þann dag hitta nemendur og foreldrar umsjónakennara og fara yfir námsmat og yfirfara markmið. Við hvetjum foreldra til að fara vel yfir óskilamuni sem verða á göngum skólans. Frístundaheimilið er opið frá 8:10 - 16:15....
Lesa meiraFyrirlestur hjá Bjarna Fritzsyni
Í dag fengu nemendur miðstigsins heimsókn frá Bjarna Fritzsyni. Hann er sálfræðingur og rithöfundur og hefur m.a. skrifað bækurnar um Orra óstöðvandi. Fyrirlesturinn fjallaði um heilbrigði og sjálfstyrkingu og var í boði FFGÍR og foreldrafélaga grunnskóla Reykjanesbæjar. Við þökkum þeim kærlega fyrir. Nemendur okkar voru ánægðir með fyrirlesturi...
Lesa meiraJólahátíðin og ársbyrjun
Síðasta kennsludeginum á 20. kennsluári Heiðarskóla lauk með skemmtilegri jólahátíð í íþróttahúsinu og notalegum stundum í heimastofum. Nemendur úr 7. bekk hófu dagkrána í íþróttasal með hinum árlega helgileik. Næstir stigu allir nemendur í 2. bekk á stokk og sungu tvö jólalög við undirspil Sigrúnar Gróu forskólakennara. Áður en dansað var við jól...
Lesa meira














