11. febrúar 2024

Skólastarf mánudaginn 12. febrúar

Uppfært.

Það verður matur frá Skólamat í boði.

Skólastarf verður í öllum leik- og grunnskólum í Reykjanesbæ, á morgun mánudaginn 12. febrúar nema eitthvað óvænt komi upp á. Þetta á einnig við um starfsemi frístundaheimila. Þess má geta að skipulagt íþróttastarf hjá börnum og ungmennum fellur niður og því er engin frístundarúta í gangi. Vel gengur að koma og halda hita á skólabyggingum en starfsfólk sveitarfélaganna og aðgerðastjórn Suðurnesja hafa nýtt helgina til að koma fyrir hitablásurum í allar byggingar. Þó að hiti sé góður þá getur verið gólfkalt og því eru nemendur hvattir til að nota inniskó eða vera í ullarsokkum.

Staðan verður tekin reglulega og upplýsingar verða sendar frá skólastjórnendum til foreldra/forráðamanna ef gera þarf breytingar og aðlaga skólastarf að þeim.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan