27. september 2019

Markmiðasetningadagur

Þriðjudagurinn 1. október er markmiðasetningardagur í Heiðarskóla. Þann dag eiga kennarar, nemendur og foreldrar/forráðamenn í 2. - 10. bekk samtal um markmið nemenda fyrir skólaárið og fleira.


Foreldrar barna í 1. bekk eru boðaðir á lestrarfræðslu á sal skólans kl. 8.15 - 8.45. Áhersla er lögð á að allir nemendur í 1. bekk eigi a.m.k. einn fulltrúa á fundinum og verður mæting skráð. Þessar 30 mínútur sem fræðslan fer fram er frístund opin öllum í 1. bekk, hvort sem börn eru skráð í hann eða ekki. Að fræðslu lokinni fylgja þau börn sem ekki eru í frístund foreldrum sínum heim.
Frístundaheimlið er opið frá kl. 8.10 - 16.15.

Skráning samtalstíma fer fram á Mentor. Hefst hún að morgni fimmtudagsins 26. september og lýkur að kvöldi sunnudagsins 29. október. Leiðbeiningar um hvernig skrá á tíma má finna hér: https://www.youtube.com/watch?v=mEFYnJhJAsM

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan