25. september 2021

Krakkakosningar í Heiðarskóla

Krakkakosningar 2021 er samstarfsverkefni umboðsmanns barna og KrakkaRÚV og eru haldnar í tengslum við kosningar til Alþingis.  Með krakkakosningum er börnum gefið tækifæri til að kynnast fyrirkomulagi almennra kosninga og láta í ljós skoðanir sínar, í samræmi við ákvæði Barnasáttmálans, samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

Krakkakosningar gefa einstakt tækifæri til að vekja áhuga og umræður í skólastarfi um hlutverk Alþingis og stjórnmálaflokka.

Kennarar sýndu nemendum kynningu frá hverju framboði, sem KrakkaRúv hafði tekið saman. Framboðin fóru þar yfir helstu áherslur sínar í málefnum barna í viðtali við fréttamann. Myndböndin má sjá inn á vefsvæðinu krakkaruv.is

Nemendur í Heiðarskóla gengu til kosninga s.l. fimmtudag. Kosningarnar fóru afar vel fram, þar sem kosið var á ákveðnu svæði og gengið inn í kjörklefa.

Flokkur fólksins var sigurvegari kosninganna í Heiðarskóla, í öðru sæti var Sjálfstæðisflokkurinn og í þriðja sæti Framsókn.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan