11. mars 2024

Árshátið Heiðarskóla

Fimmtudaginn 14. mars og föstudaginn 15. mars fer árshátíð Heiðarskóla fram.

Árshátíðin er að venju þrískipt og má sjá tímasetningar hér fyrir neðan.

Hefð er fyrir því að hafa sérstakt þema annað hvert ár og er þemað núna Afmæli þar sem Heiðarskóli fagnar 25 ára starfsafmæli i ár. Atriðin á árshátíð yngsta stigs og miðstigs tengjast því öll afmæli á einhvern hátt. Unglingastigið mun svo sýna leikritið „Gerðu það sem þú vilt“ eftir Bryndísi Jónu Magnúsdóttur.  Þar sem nú er 25. starfsár Heiðarskóla vildu leikstjórarnir setja á svið leikrit sem væri innblásið af vinsælum leikritum sem sýnd hafa verið í skólanum undanfarin ár. Sagan á sér stað í skólanum þar sem ríkir ákveðið upplausnarástand vegna þess að enginn áhugi er meðal unglinganna á að taka þátt í leikritinu. Sögu-þráðurinn er spunninn í kringum lög og dansa úr t.d. Mamma mía!, Grís, Kardimommubænum og Bugsy Malone.    


Tímasetningar árshátíðar eru sem hér segir:
1. - 4. bekkur: Mæting í heimastofu kl. 8:40, hátíð hefst kl. 9:00.
5. - 7. bekkur: Mæting í heimastofu kl. 10:40, hátíð hefst kl. 11:00.

Fimmtudagur 14. mars
8. - 10. bekkur. Mæting í heimastofu kl. 19:20, hátíð hefst kl. 19:30.

Að sýningu lokinni hjá yngra stigi og miðstigi verður nemendum og gestum boðið upp á skúffuköku í tilefni dagsins. Nemendur koma með eigin drykki en kaffi verður í boði fyrir fullorðna fólkið. Diskótek verður fyrir unglingastigið að sýningu lokinni.

 
Árshátíðardagurinn er skertur skóladagur og frístund lokuð.

---  
Our annual school festival will be held on March 15th in two parts at the times shown below.  
1st - 4th grade: Student´s come to their classroom 8:40 am, show starts at 9:00
5th - 7th grade: Student´s come to their classroom 10:40 am, show starts at 11:00

Thursday March 14th
8th - 10th grade: Student´s come to their classroom 19:20 pm, show starts at 19:30
At the end of the shows for 1st – 7th grade there will be a chocolate cake for everyone in the occation of the day. There will be disco at the end of the show for 8th – 10th grade.


The school festival day is a short student day and Frístund is closed.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan