3. júní 2026

Vorferð hjá 5. bekk

Mánudaginn 1. júní síðastliðinn fóru nemendur í 5. bekk í sína árlegu vorferð. Veðrið lék við hópinn og ferðalangar voru fullir af tilhlökkun.

Ævintýrið hófst á því að hópurinn skoðaði hinn magnaða Gunnuhver þar sem gufan stíga upp úr jörðinni vakti mikinn áhuga. Því næst lá leiðin að Reykjanesvita þar sem allir gæddu sér á nesti í dásamlegu umhverfi.

Næst var förinni heitið til Grindavíkur. Þar beið krakkanna frábær skemmtun í íþróttahúsinu þar sem þau fengu að leika sér frjálst í heilum þremur sölum. Ekki skemmdi fyrir að hópurinn fékk bæði íþróttahúsið og sundlaugina alveg út af fyrir sig.

Ferðin endaði svo á skólalóð Grunnskóla Grindavíkur í skemmtilegum leikjum. Það voru þreyttir en einstaklega glaðir og sáttir krakkar sem sneru heim eftir frábæran dag.

Sjá myndir í myndasafni

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus