2. október 2026

Vegleg bókagjöf frá Kiwanisklúbbnum Vörðu

Skólanum hefur borist vegleg gjöf frá Kiwanisklúbbnum Vörðu, bókin Þegar pabbi fór í fangelsi eftir Ásdísi Birtu Bjarkadóttur.

Bókin er skrifuð út frá reynslu höfundar og er ætluð börnum sem eiga eða hafa átt foreldri í fangelsi. Hún er skrifuð til „litlu Ásdísar“, til að svara spurningum sem vöknuðu, veita huggun og segja það sem hún hefði viljað að væri sagt við hana þegar pabbi hennar fór í fangelsi.

Ósk höfundar er sú að börn í svipaðri stöðu geti fundið samkennd í sögunni, fengið svör við erfiðum spurningum og upplifað sig örlítið minna ein.

Við þökkum Kiwanisklúbbnum Vörðu kærlega fyrir þessa gjöf sem getur reynst dýrmæt stuðningur fyrir börn og fjölskyldur þeirra.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus