27. apríl 2016

Vandaður samlestur og ljúfur söngur á Litlu upplestrarhátíðinni

Í dag var Litla upplestrarhátíðin haldin á sal skólans þar sem nemendur í 4. bekk lásu sögur og vísur auk þess sem þeir sungu Ég leiddi þig í lundinn, Lítill fugl, Sofi, sofi sonur minn og Tunglið, tunglið taktu mig við undirleik Guðmundar Hermannssonar. Eins og venja er var foreldrum boðið að koma og taka þátt í hátíðarhöldunum. Nemendur stóðu sig ákaflega vel enda hafa þeir lagt mikið á sig undanfarna daga og vikur við að undirbúa sig fyrir hátíðina með kennurunum sínum þeim Maríu Brynjólfsdóttur og Kristínu G.B. Jónsdóttur. Fleiri myndir má sjá í myndasafni.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan