Uppskerutími hjá 4. bekk
Fimmtudaginn 3. september, var sannkallaður uppskerudagur hjá nemendum í 4. bekk þegar þau tóku upp kartöflurnar sem þau settu niður fyrr á árinu.
Uppskeran var heldur betur góð og það leyndust kartöflur af öllum stærðum niðri í moldinni. Það var mikil spenna að sjá hvað kæmi upp úr hverri holu og nemendur gengu vasklega til verks. Eitt vakti þó alveg sérstaka athygli hvar var „móðirin“? Nemendur voru mjög spenntir að finna móðurkartöfluna, kartöfluna sem upphaflega var sett niður í moldina og hafði síðan gefið af sér allar nýju kartöflurnar. Það skapaði skemmtilegar umræður og vangaveltur um hvað hefði gerst niðri í moldinni frá því að kartaflan var sett niður og þar til komið var að uppskeru. Verkefnið gaf þannig gott tilefni til að ræða hvernig kartöflur vaxa, hvað þarf til að fá góða uppskeru og hvaðan maturinn okkar kemur. Það er eitthvað alveg sérstakt við að fá að fylgja ferlinu frá því að sett er niður í moldina og þar til uppskeran er tekin upp og sjá afraksturinn með eigin augum.
Frábært dæmi um nám þar sem útivera, samvinna, forvitni og fræðsla fara saman og ekki skemmir fyrir þegar afraksturinn er svona glæsilegur!
Sjá myndir í myndasafni.





