UPPFÆRT_Veðurviðvörun
Neyðarstjórn sveitarfélagsins hefur farið yfir stöðuna. Skólahald fer fram í dag að óbreyttu. Þótt skólar séu opnir þurfa forsjáraðilar að meta hvort aðstæður séu öruggar fyrir börn að komast í og úr skóla og láta vita ef forföll verða eða ef börn komast ekki í skólann. Skráð verður leyfi eða forföll hjá þeim börnum. Mikilvægt er að fylgja börnum inn og út úr skólabyggingum til að tryggja öryggi, sérstaklega með hliðsjón af veðri, færð og aðstæðum í nærumhverfi.
Allir vegir eru opnir og snjóþjónusta sveitarfélagsins er í fullum gangi til að halda vegum færum.





