13. maí 2026

Umhverfið okkar

Við sendum hér stórt hrós til nemenda í 3. bekk og kennara þeirra. Í vetur hafa þau verið í útinámi og einn af þeim þáttum sem þau unnu að þar var umhverfið okkar. Þau tóku til í beðunum okkar í haust og settu niður lauka. Núna undanfarið hafa þau tekið meira til í kringum beðin, sópað og hreinsað og hreinsað arfa burt. Laukarnir sem þau settu niður í haust eru að láta sjá sig sem falleg blóm og á næstunni ætla þau að setja niður kartöflur

Virkilega skemmtilegt hjá þeim og mikill lærdómur. 

Sjá fleiri myndir í myndasafni.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus