Tímasetningar skólaslita
Skólaslit Heiðarskóla verða föstudaginn 6. júní og eru foreldrar/forráðamenn hvattir til að mæta með börnum sínum.
Tímasetningar eru eftirfarandi:
Kl. 09:00 - 1., 2. og 3. bekkur.
Kl. 10:00 - 4., 5. og 6. bekkur.
Kl. 11:00 - 7., 8. og 9. bekkur.
Kl. 13:00 - Útskrift 10. bekkjar.
Að lokinni útskrift 10. bekkjar er nemendum og foreldrum þeirra boðið til kaffisamsætis.