12. febrúar 2016

Þorgrímur hvatti til ástar á lífinu

Þorgrímur Þráinsson kom í sína árlegu heimsókn til okkar fimmtudaginn 4. febrúar. Hann hélt fyrirlestur fyrir nemendur í 10. bekk sem ber heitið Verum ástfangin af lífinu! Með honum hvatti hann nemendur til að setja sér markmið á hinum ýmsu sviðum lífs síns svo hjól lífsins myndi snúast á eðlilegan hátt og leggja sig fram við að vera góðar manneskjur sem gefa af sér. Þannig yrðu þeir sáttari við sjálfa sig og hamingjusamari fyrir vikið. Nemendur kunnu vel að meta hvatningarorð Þorgríms.  

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan