Stórglæsilegt afrek, Matthildur Yrsa hlýtur Sólfaxa 2026
Það er sannarlega ánægjulegt að segja frá því að Matthildur Yrsa Sigurðardóttir, nemandi í Heiðarskóla, er einn höfunda bókarinnar Síðasti dagurinn sem hlaut í dag Sólfaxa, íslensku barnabókaverðlaunin 2026. Verðlaunin voru afhent í bókabúð Forlagsins við Fiskislóð.
Matthildur Yrsa var nýorðin 11 ára þegar náttúruhamfarirnar dundu yfir Grindavík. Í Síðasta deginum segir hún frá eigin upplifun þegar hún þurfti að yfirgefa bæinn ásamt fjölskyldu sinni. Hún vann bókina í samstarfi við rithöfundinn Þórunni Rakel Gylfadóttur og myndhöfundurinn Didda Flygenring myndskreytir verkið.
Dómnefnd lýsir Síðasta deginum sem einstöku verki þar sem einlæg rödd barnsins fær að njóta sín og lesendum gefst tækifæri til að setja sig í spor Grindvíkinga. Bókin fjallar á áhrifaríkan hátt um heimili, samfélag, öryggi og þá hlýju sem fjölskyldan getur veitt þegar á reynir.
Við í Heiðarskóla erum ótrúlega stolt af Matthildi Yrsu og óskum henni, Þórunni Rakel og Diddu innilega til hamingju með þennan glæsilega árangur.







