8. maí 2026

Stjörnu Sævar heimsótti Heiðarskóla

Stjörnu Sævar heimsótti nemendur Heiðarskóla og fræddi þá um sólmyrkvann sem verður 12. ágúst 2026.

Hann sagði frá áhuga sínum á sólmyrkvum og hvernig hann hefur ferðast víða um heim til að upplifa slíka atburði. Nemendur fengu að sjá myndir og myndbönd frá þessum ferðum sem vöktu mikla athygli og forvitni.

Einnig fór hann yfir ýmsan fróðleik tengdan sólmyrkvanum, meðal annars hvernig tunglið varð til, hvenær sólmyrkvinn verður sýnilegur hér á Reykjanesskaganum og hversu lengi hann mun standa yfir. Hann útskýrði einnig hvernig á að nota sólmyrkvagleraugu á öruggan hátt og hvert best er að horfa meðan á atburðinum stendur.

Stjörnu Sævar hitti alla árganga skólans og áhuginn leyndi sér ekki hjá nemendum sem voru skólanum til mikils sóma. Hann kom efninu afar vel frá sér og kveikti mikinn áhuga á þessum einstaka náttúruviðburði hjá nemendum.

Við hvetjum foreldra og nemendur til að kynna sér meira um sólmyrkvann á heimasíðu Stjörnu Sævars: https://solmyrkvi2026.is/

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus