10. júní 2025

Skólaslit og útskrift

Skólaslit og útskrift

Skólaárinu 2024 – 2025 var slitið föstudaginn 6. júní. Skólaslitin voru að venju þrískipt, fyrir 1.-3. bekk, 4.-6. bekk, 7.-9. bekk og svo útskrift 10. bekkjar. 

Í 1. - 6 . bekk lásu fulltrúar hvers bekkjar upp bekkjarskýrslu þar sem m.a. komu fram upplýsingar um það sem þeim fannst merkilegast á skólaárinu, hvað þau lærðu mest, hvað var skemmtilegast og hvað það var sem þau muni aldrei gleyma. Þetta tókst mjög vel og var gaman að heyra hvernig nemendur okkar voru að upplifa skólaárið.

Ljóðasamkeppni Heiðarskóla fór fram á vordögum eins og áður og fer keppnin fram á öllum stigum. Samkvæmt venju voru afhent verðlaun fyrir sigurljóðið á skólaslitum. Á yngsta stigi var það Einar Helgi Högnason nemandi í 4. bekk sem hlaut ljóðaverðlaunin fyrir ljóð sitt Of vinna kannski. Á miðstigi fékk Edda Kristný nemandi í 5. bekk verðlaunin fyrir ljóð sitt Sumir eru og á elsta stigi var það Birgir Már Jóhansson nemandi i 9. bekk sem fékk verðlaunin en ljóðið hans heitir Að reiðast.

Á hverju ári er haldið skákmót Heiðarskóla þar sem nemendur úr 4. – 10. bekk geta tekið þátt og er skákmeistari skólans krýndur. Í ár var það Jakup Piotr Maliszewski. sem fékk titilinn skákmeistari Heiðarskóla 2024 - 2025.

 

Í 9. bekk kosta velunnarar skólans verðlaun til handa nemanda sem sýnt hefur einstaka eljusemi og þrautseigju í bóklegu námi. Lilja Líf Atladóttir hlaut þau verðlaun í ár.

 

 

Tónlistaratriði voru á skólaslitum og útskrift 10. bekkjar og var það Sigrún Gróa Magnúsdóttir tónlistarkennari sem hélt utan um þann lið og þökkum við henni kærlega fyrir. Efemía Rós Kristinsdóttir og Eydís Lilja Kristjánsdóttir spiluðu saman á fiðlu og blokkflautu. Og spilaði Jakup Piotr Maliszewski á gítar. 

Á útskrift 10. bekkjar spilaði Eydís Ásla F. Rúnarsdóttir á þverflautu og Birna Rún Hreiðarsdóttir á pianó. Matthías Bjarndal Unnarsson flutti fallega ræðu fyrir hönd nemenda og umsjónarkennarar hópsins þær Daníella Hólm Gísladóttir og Eygló Pétursdóttir voru með skemmtileg orð til nemenda sinna og gesta.  Ýmsar viðurkenningar voru veittar en meðal þeirra var viðurkenningin Heiðursnemandi Heiðarskóla sem Gunnar Jónsson, fyrrverandi skólastjóri, kostar. Í ár var það Matthías Bjarndal Unnarsson sem hlaut þessi verðlaun en að mati kennara og starfsmanna hefur hann verið sérstaklega jákvæður, kurteis og heiðarlegur í samskiptum við nemendur og starfsfólk skólans, verið til fyrirmyndar í framkomu sinni og ávallt gert sitt besta í sínum verkefnum.

Við útskrift fá nemendur útskriftartrefla um leið og þeir taka við vitnisburðarskjölum sínum. Treflarnir eru gjöf frá skólanum og foreldrafélagi Heiðarskóla. Að því loknu var skóla slitið af Lóu Björg skólastjóra og árgangur 2009 þar með útskrifaður úr grunnskóla.

Að útskrift lokinni var kaffisamsæti með nemendum, foreldrum/forráðamönnum þeirra og starfsfólki skólans. Þær Ólöf Jónsdóttir og  Þórunn Sigurðardóttir heimilisfræðikennarar sáu um veitingarnar.

Það er venja á starfsdögum að vori að kveðja þá starfsmenn sem hætta hjá okkur og veita þeim gjafir sem náð hafa 10 ára starfsaldri í Heiðarskóla. Í september kvaddi Halla Tómasdóttir kennari okkur. Skúli Sigurðsson kennari kvaddi okkur einnig í apríl. En Elsa Björk Guðjónsdóttir, Ingunn Anna Ragnarsdóttir og Kristín G.B. Jónsdóttir láta einning nú af störfum við skólann.  Stuðningsfulltrúarnir Ása Gísladóttir, Betsý Ásta Stefánsdóttir, Kristín Sigurbjörg Jónsdóttir og Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir halda allar á önnur mið. Öllu þessu frábæra fólki höfum við þakkað ánægjulegt samstarf og einstaklega góð viðkynni.

Myndir af skólaslitum má finna í myndasafni á heimasíðu skólans.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan