6. júní 2017

Skólaslit og útskrift 10. bekkjar

Ánægjulegu skólaári var slitið á sal skólans föstudaginn 2. júní. Skólaslitin voru að venju þrjú, fyrir 1.-3. bekk, 4.-6. bekk, 7.-9. bekk og svo útskrift 10. bekkjar. Eftirtaldir nemendur glöddu gesti með vönduðum tónlistarflutningi á skólaslitum í 1.-9. bekk: Guðrún Gísladóttir 3. SB, Jón Ingi Garðarsson 1. b., Aron Freyr Kristjánsson 2. b., Damjan Tisma 4. ÞS, Embla Önnudóttir og Viktoría Erla Magnúsdóttir í 5. SJ, Guðný Ösp Ólafsdóttir og Stefán Jón Friðriksson 7. LA og Jón Ólafur Skarphéðinsson 7. ÞG.

Í 1.-6. bekk var hverjum bekk afhent viðurkenningarskjal með umsögnum og hvatningarorðum starfsfólks. 5. bekkur fékk auk þess bókina Fuglavísir að gjöf frá Kölku fyrir áhugasemi og dugnað í náttúrufræði. Í 7.-9. bekk voru veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í bóklegum greinum, list- og verkgreinum og íþróttum og sundi. Velunnarar skólans kostuðu einnig verðlaun til handa nemanda á þessu aldursstigi sem sýnt hefur einstaka eljusemi og þrautseigju í bóklegu námi.

Í orðum stjórnenda kom m.a. fram að á næsta skólaári mun Reykjanesbær sjá öllum nemendum fyrir námsgögnum að undanskildum íþrótta- og sundfatnaði svo ekki verða gefnir út innkaupalistar fyrir næsta skólaár.

Á útskrift 10. bekkjar spilaði Arnar Geir Halldórsson þemalagið úr Pirates of the Caribbean á selló. Þau Íris Ástþórsdóttir og Skúli Sigurðsson, umsjónarkennarar, töluðu til nemenda sinna og annarra gesta og Arnór Daði Jónsson flutti erindi fyrir hönd nemenda. Ýmsar viðurkenningar voru veittar en meðal þeirra var viðurkenningin Heiðursnemandi Heiðarskóla sem Gunnar Jónsson, fyrrverandi skólastjóri, kostar og afhendir. Heiðursnemandinn í ár er Jón Ragnar Sigurgeirsson en að mati kennara og starfsmanna hefur hann verið sérstaklega jákvæður, kurteis og heiðarlegur í samskiptum við nemendur og starfsfólk skólans, verið til fyrirmyndar í framkomu sinni og ávallt gert sitt besta í sínum verkefnum. Eftir að hverjum nemanda hafði verið veitt vitnisburðarskjal og rós sagði Haraldur Axel skólárinu 2016 - 2017 slitið og voru nemendur í 10. bekk þar með útskrifaðir úr grunnskóla. Að skólaslitum loknum gæddu viðstaddir sér á gómsætum veitingum sem þær Ólöf Jónsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Guðbjörg Fríða Pálmarsdóttir ásamt fleirum höfðu galdrað fram af sinni alkunnu snilld.

Þeim Ólöfu Kristínu Guðmundsdóttur, Hjálmari Benónýssyni, Óskari Birgissyni, Sveinbjörgu Sævarsdóttur og Steinunni Snorradóttur var þakkað fyrir vel unnin störf en þau hafa nú þegar eða munu hverfa til annarra starfa. Erlu Maríu Andrésdóttur og Steinunni Snorradóttur var afhent gjöf fyrir að hafa unnið sitt 10. starfsár í Heiðarskóla.  

Myndir má sjá í myndasafni.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan