11. júní 2026

Skólaslit og útskrift 10. bekkjar

Í gær fóru fram skólaslit í Heiðarskóla og útskrift nemenda úr 10. bekk. Það var fallegur dagur og ánægjulegt að sjá nemendur mæta prúðbúna á sal skólans ásamt foreldrum og forráðamönnum. Sérstaklega var gaman að sjá hversu margir fylgdu börnum sínum á þessum fallega degi.

Skólaslitin voru hátíðleg að vanda og sáu nemendur um falleg tónlistaratriði.

Á skólaslitum 1.–3. bekkjar lék Sunna Jasmine, nemandi í 3. bekk, á selló lögin Allegro og Góða mamma við undirleik Guðríðar tónlistarkennara.

Á skólaslitum 4.–6. bekkjar lék Edda Kristný, nemandi í 6. bekk, á píanó lagið Spanish Caballero.

Á skólaslitum 7.–9. bekkjar fluttu systurnar Agla Fanney, nemandi í 7. bekk, og Guðbjörg Lára, nemandi í 10. bekk, sungu lögin Þakklæti og Vikivaki við undirleik móður sinnar, Hjördísar Rósar.

Allar stóðu þær sig með stakri prýði.

Verðlaun Hollvina Heiðarskóla

Ár hvert veita Hollvinir Heiðarskóla verðlaun fyrir framúrskarandi árangur og jákvæða eiginleika.

Í ár hlaut Margrét Yrsa Ö. Stephensen, 9.EN, viðurkenningu fyrir eljusemi og þrautseigju í námi.

Einnig voru veitt verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í list- og verkgreinum

Í ár hlaut Lena Bozena Matlak, 8.SM þau verðlaun.

  

Útskrift 10. bekkjar

Nemendur í 10. bekk mættu glæsilegir og prúðbúnir  og skapaðist falleg og hátíðleg stemning.

Guðbjörg Lára og Ísabella fluttu lagið Landslide við undirleik Hjördísar Rósar, móður Guðbjargar Láru. Einnig léku Jón Ingi á blokkflautu og Rut Páldís á fiðlu lagið Wonderful World við mikla hrifningu gesta.

Þá var komið að viðurkenningum. Viðurkenning fyrir framúrskarandi árangur í bóklegum greinum hlutu.

  • Rut Páldís Eiðsdóttir
  • Jón Ingi Garðarson
  • Lilja Líf Atladóttir

Viðurkenningar fyrir góðan árangur í náttúrufræði
(verðlaun gefin af Kölku)

  • Rut Páldís Eiðsdóttir
  • Jón Ingi Garðarson

Viðurkenning frá Isavia fyrir góðan árangur í vinnustaðanámi

(verðlaun gefin af Isavia)

  • Birkir Snær Örvarsson

Viðurkenning frá Björgunarsveitinni Kletti fyrir þátttöku

  • Ólöf Rós Davíðsdóttir
  • Arna Björk Ragnarsdóttir

Íþróttakona og íþróttamaður Heiðarskóla 2025–2026

Íþróttakona Heiðarskóla

  • Rut Páldís Eiðsdóttir

Íþróttamaður Heiðarskóla

  • Ari Einarsson

Þau hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur í skólaíþróttum og fyrir að vera frábærar fyrirmyndir innan skólans.

Að lokum kom óvænt nemendaatriði sem snerti við öllum viðstöddum. Guðbjörg Lára, Ísabella, Jón Ingi og Rut Páldís fluttu íslenska útgáfu lagsins Slipping Through My Fingers úr Mamma Mia. Textann samdi Hjördís Rós, sem einnig spilaði undir á píanó.

Á meðan lagið var flutt var sýnd myndasýning sem nemendur höfðu tekið saman frá árum sínum í Heiðarskóla. Þetta var einstaklega falleg og hjartnæm stund sem vakti bæði bros og tár hjá viðstöddum.

Að lokum var útskriftarnemendum og gestum boðið til kaffisamsætis. óskum við útskriftarnemendum okkar innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar á þeim spennandi tímum sem framundan eru.

Eins og gengur og gerist verða nokkrar breytingar á starfsmannahópi Heiðarskóla á komandi skólaári.

Við kveðjum með þakklæti starfsfólkið okkar sem heldur á nýjar slóðir. Það eru þau Andri Már Þorsteinsson, Garðar Franz Gíslason, Lilja Dögg Sæmundsdóttir, Nikola Orelj og Ragnar Ingi Sigurðusson sem láta af störfum við skólann. Við þökkum þeim innilega fyrir þeirra framlag til skólasamfélagsins og óskum þeim alls hins besta í þeim verkefnum sem fram undan eru.

Einnig hefur Þórey Garðarsdóttir, deildarstjóri eldra stigs, sagt upp störfum. Við þökkum Þóreyju fyrir farsælt samstarf og mikilvægt framlag til skólans undanfarin ár. Við starfinu tekur Sveinn Þór Steingrímsson sem hefur leyst hana af síðastliðið ár.

Sérstakar þakkir færum við einnig Ólöfu Jónsdóttur og Þórunni Sigurðardóttur, sem láta nú af störfum eftir mjög langan og farsælan starfsferil í Heiðarskóla. Þær hafa verið mikilvægur hluti af skólasamfélaginu okkar um árabil. Nú taka við nýir tímar þar sem þær ætla að njóta lífsins, fjölskyldunnar og þess sem kallað er hið langa sumarfrí. Við þökkum þeim af heilum hug fyrir allt þeirra starf og óskum þeim velfarnaðar og gleðiríkra ára framundan.

Þá verður María Óladóttir, aðstoðarskólastjóri, í leyfi á næsta skólaári og óskum við henni velfarnaðar á meðan á leyfinu stendur.

Við þökkum fráfarandi starfsfólki fyrir samfylgdina og hlökkum til að taka á móti nýjum verkefnum og nýju skólaári með öflugum starfsmannahópi.

Frábær dagur í alla staði í Heiðarskóla.

Myndir af deginum eru í myndasafni skólans.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus