Skólasetning og skólabyrjun
Fimmtudagur 22. ágúst:
Kl. 09.00 mæta nemendur í 2., 3. og 4. bekk
kl. 10.00 mæta nemendur í 5., 6. og 7. bekk
kl. 11.00 mæta nemendur í 8., 9. og 10. bekk.
Á skólasetningunni verður flutt stutt ávarp en síðan er haldið í stofur með umsjónarkennara. Þar fara kennarar yfir helstu áherslur í námi og kennslu. Farið verður yfir námsmarkmið, verklagsreglur, kennsluhætti í einstökum greinum, mat á námi og helstu viðfangsefni vetrarins. Gert er ráð fyrir að þetta taki u.þ.b. klukkustund.
Nemendur í 1. bekk og foreldrar þeirra verða boðaðir með sérstöku bréfi til viðtals til umsjónarkennara þennan dag.
Föstudagur 23. ágúst:
Skólastarf hjá öllum nemendum hefst samkvæmt stundaskrá föstudaginn 23. ágúst.
Skólasetning hjá 1. bekk verður í byrjun þessa fyrsta skóladags kl. 08:10 á sal skólans.