12. ágúst 2015

Skólasetning og skólabyrjun

Mánudagur 24. ágúst:

Kl. 09.00 mæta nemendur í 2., 3. og 4. bekk

kl. 10.00 mæta nemendur í 5., 6. og 7. bekk

kl. 11.00 mæta nemendur í 8., 9. og 10. bekk.

Á skólasetningunni verður flutt stutt ávarp en síðan er  haldið í stofur með umsjónarkennara. Þar fara kennarar yfir helstu áherslur í námi og kennslu. Farið verður m.a. yfir námsmarkmið, verklagsreglur, kennsluhætti í einstökum greinum, mat á námi og helstu viðfangsefni vetrarins. Gert er ráð fyrir að fundirnir taki u.þ.b. klukkustund.

Nemendur í 1. bekk og foreldrar þeirra verða boðaðir með sérstöku bréfi til viðtals til umsjónarkennara þennan dag.

Þriðjudagur 25. ágúst:

Skólastarf hjá öllum nemendum hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst.       

Skólasetning hjá 1. bekk verður í byrjun þessa fyrsta skóladags kl. 08:10 á sal skólans.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan