Skólasetning
Skólasetning Heiðarskóla fer fram þriðjudaginn 25. ágúst og hefst hún hjá öllum kl. 8.10
- Nemendur í 1. bekk eru í viðtölum þennan dag og hafa foreldrar fengið tölvupóst með nánari upplýsingum.
- Nemendur í 2. – 4. bekk mæta á sal skólans. Að lokinni stuttri setningu fylgja þau umsjónarkennara í heimstofur.
- Nemendur í 5. – 10. bekk mæta í heimastofur þar sem umsjónarkennarar verða með skólakynningu.
Á skólakynningum verður farið yfir ýmis atriði sem tengist skólastarfinu og áherslum árgangsins. Að kynningum loknum verða nemendur áfram í skólanum. Fyrstu þrír tímarnir eru hjá umsjónarkennara þar sem áhersla verður á hópefli, tengslamyndun og vinna að sínu heimasvæði. Eftir fyrstu þrjá tímana verður kennt samkvæmt stundarskrá.
Frístund hefst þennan dag kl. 13.10 fyrir 1. – 4. bekk
Við hvetjum foreldra/forráðafólk að mæta með barni sínu í skólann í upphafi dags.





