29. nóvember 2017

Skertur kennsludagur á föstudaginn og aðventudagskrá

Föstudagurinn 1. desember er skertur kennsludagur og mun skóla ljúka kl. 11.10. Nemendur í 1.-4. bekk geta borðað hádegismatinn sinn áður en þeir fara heim eða í frístundaskólann. Rétt er að taka fram að foreldrar nemenda í 5.-10. bekk greiða ekki fyrir máltíðir á skertum dögum.

Þennan dag ætlum við að hleypa jólaandanum inn í skólann okkar og munum m.a. færa skólastofurnar í jólabúning. Skreytinganna fáum við svo að njóta alla aðventuna. Við hvetjum nemendur til að mæta í fatnaði eða með fylgihluti sem minna á jólin þennan dag.

Dagskrá aðventunnar verður annars með nokkuð hefðbundnu sniði að undanskilinni breytingu á jólakortagerð. Í stað þess að nemendur útbúi jólakort og dreifi í jólapóstkassa munu bekkirnir útbúa saman rafrænar jólakveðjur sem settar verða inn á facebook-síðu skólans að morgni 20. desember. Þær verða svo lesnar upp á jólastundum bekkjanna þann daginn.

Hér er yfirlit yfir helstu viðburði sem eru sameiginlegir fyrir allan skólann eða aldursstig.

* Föstudaginn 1. desember verður hafist handa við að skreyta stofur í 1. - 6. bekk. Í 7.-10. bekk fer fram stofuskreytingakeppni. Snúðasala 10. bekkinga í nestistíma.

* Mánudaginn 4. desember hefst lestrarfjör sem stendur yfir í tvær vikur. Nemendur í 1. – 7. bekk safna þá jólakúlum á jólatré bekkjarins fyrir heimalestur og lestur í skóla. Nemendur í 8. – 10. bekk eiga sameiginlegar lestrarstundir í 10 mínútur á hverjum degi.

* Dagana 4. - 8. desember fá nemendur heitt súkkulaði og piparkökur á sal skólans. 

* Miðvikudaginn 13. desember verður hátíðarmatur í hádeginu. Þeir sem ekki eru í mataráskrift geta keypt „hátíðarmiða“ á 500 kr. Athugið að þetta þurfa þeir einnig að gera sem ekki eru í áskrift á miðvikudögum en vilja borða þennan dag. Þeir sem eiga matarmiða geta skipt honum út fyrir „hátíðarmiða“ í mötuneytinu. Salan (og miðaskiptin) stendur yfir dagana 5. - 8. des. milli kl. 9 -11 í mötuneytinu. Aðeins er hægt að borga með peningum.

Þennan dag verða nemendur hvattir til að mæta í fatnaði eða með fylgihluti sem minna á jólin. 

* 14. desember sýna nemendur í leiklistarvali nemendum í 1. - 4. bekk jólaleikrit á sal.

* 15. desember lýkur lestrarfjöri og mega nemendur þá koma með „sparinesti“ í skólann. Er þá leyfilegt að koma með sætabrauð en ekki sælgæti eða gosdrykki.

* Jólasöngstundir verða á sal og rithöfundar koma í heimsókn og lesa úr nýútkomnum bókum sínum í desember.

* Miðvikudaginn 20. desember er jólahátíð Heiðarskóla. Allir nemendur verða saman í íþróttahúsinu þar sem m.a. verður gengið í kringum jólatréð en fara svo með umsjónarkennara í sínar heimastofur eins og venja er. Jólahátíðin hefst kl. 9.00 og áætlað er að henni ljúki um kl. 10.30. Þennan dag er enginn frístundarskóli. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag jólahátíðar veita umsjónarkennarar þegar nær dregur.

 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan