Skapandi og hlutbundin stærðfræðivinna
Á unglingastigi í Heiðarskóla hefur verið lögð áhersla á að nálgast rúmfræði á skapandi og hlutbundinn hátt, þar sem nemendur fá tækifæri til að tengja hugtök við raunverulega hluti og vinna saman að verkefnum. Slík nálgun hefur reynst bæði áhrifarík og ánægjuleg og skilar sér í auknum skilningi, virkri þátttöku og gleði í kennslustundum.
Undanfarin ár hafa nemendur í 7.–10. bekk unnið með rúmfræðihugtök í pörum. Hver hópur fær plastvasa með plöstuðum spjöldum og þarf að para saman hugtak, útskýringu og myndir sem tengjast viðkomandi hugtaki. Þessi vinna hefur oft leitt af sér skemmtilegar umræður milli nemenda og dýpkað skilning þeirra á efninu.
Einnig hefur verið prófað að vinna hlutbundið með rúmmál og yfirborðsflatarmál. Verkefnið fór fram í 7. og 9. bekk og var aðlagað að aldri og námsgreinum nemenda. Nemendur unnu í pörum, klipptu út snið formanna, festu á veggspjöld og þræddu tvinna þannig að formið lokaðist og varð þrívítt. Þeir reiknuðu svo rúmmál og yfirborðsflatarmál formanna.
Undanfarin ár hefur 9. bekkur einnig verið að vinna verkefnið Teiknimyndapersónan, þar sem nemendur hanna og búa til þrívídda teiknimyndapersónu. Þeir þurfa að teikna persónuna nákvæmlega, setja inn allar lengdir og skipuleggja efnisnotkun allt frá pappírsnotkun og málningu til stærðar á frauðkúlum. Verkefnið er sambland af stærðfræði, hönnun, skýrslugerð og sköpun með mikla áherslu á samvinnu og kynningu hópanna.
Það sem einkennir þessi verkefni er mikil virkni nemenda, þeir byrja strax að vinna í hverri kennslustund og sýna mikinn áhuga og útsjónarsemi. Þóru Guðrúnu og Írisi stærðfærðikennurum við skólann finnst gaman að fylgjast með nemendum blómstra í slíkri verkefnavinnu og sjá hvernig stærðfræðin lifnar við í höndum þeirra.
En nánar má lesa um þessa flottu vinnu hjá Þóru Guðrúnu og Írisi og nemendum þeirra í grein sem birtist á flatarmal.is
📎 Hér má sjá fréttina í heild sinni - Rúmfræði og teiknimyndapersónur – FLATARMÁL
📷 Myndir frá vinnu 9. bekkinga við teiknimyndapersónur má sjá í myndasafni