Skákmót Heiðarskóla
Skákmót Heiðarskóla fór fram föstudaginn 29. maí og var stemningin frábær frá upphafi til enda. Alls tóku 38 nemendur þátt í mótinu og var keppt af miklum krafti og einbeitingu.
Til að tryggja að sem flestir gætu fylgst með var mótið sýnt beint í skólastofum, þar sem nemendur hvöttu sína fulltrúa áfram og fylgdust spenntir með gang mála.
Hver keppandi lék fimm leiki og eftir harða baráttu enduðu þrír efstir: Arnar í 8. bekk, Jakub Piotr í 9. bekk og Ragnar Örn í 10.bekk. Þeir léku svo til úrslita í spennandi lokaeinvígi.
Að lokum stóð Jakub uppi sem sigurvegari og tryggði sér þar með titilinn annað árið í röð, sem er glæsilegur árangur.
Heiðarskóli óskar öllum þátttakendum til hamingju með frábæra frammistöðu og Jakub sérstakar hamingjuóskir með sigurinn.








