Sjálfsmatskýrsla 2025-2026
Sjálfsmatsskýrsla Heiðarskóla fyrir skólaárið 2025–2026 er nú komin út. Finna má skýrsluna á heimasíðu skólans: Mat á skólastarfi - Heiðarskóli
Í skýrslunni er gert grein fyrir sjálfsmati Heiðarskóla skólaárið 2025–2026, þeim matsaðferðum sem beitt var, niðurstöðum matsins og þeim umbótum sem ráðist verður í á grundvelli þeirra.
Niðurstöður skólaársins gefa um margt jákvæða mynd af skólastarfinu. Lestrarmælingar sýna góðan árangur í lesfimi í allflestum árgöngum og var árangur 1. og 10. bekkjar sérstaklega ánægjulegur. Matið dregur jafnframt fram skýr sóknarfæri. Ánægja nemenda af lestri mælist enn undir meðaltali samanburðarskóla, líkt og áhugi á stærðfræði og náttúrufræði, og huga þarf að sambandi nemenda og kennara í ákveðnum árgöngum.
Sjálfsmat er ekki markmið í sjálfu sér heldur verkfæri til stöðugra umbóta. Vinnan við matið á að nýtast öllu starfsfólki skólans til að bæta skólastarfið og gera góðan skóla enn betri. Í anda einkunnarorða skólans, hugvits, háttvísi og heilbrigðis mun skólasamfélagið í Heiðarskóla halda áfram að vinna saman að því að nemendum og starfsfólki líði vel og að hver og einn fái tækifæri til að vaxa og njóta sín.





