Sjálfbærnivika
Vikan 2. - 7. nóvember er sjálfbærnivika hjá Reykjanes Jarðvangi. Markmið vikunnar er að vinna með heimsmarkmiðin og vekja athygli á sjálfbærni. Hvetja alla til að skoða hvað við getum gert til að stuðla að sjálfbærni í okkar daglega lífi.
Í samstarfi við skólamat ætlar UNESCO teymi skólans að vigta matarleyfar eftir hádegismat og taka saman hve miklu magni af mat skólinn okkar hendir. Í dag var staðan þessi, þetta er síðasta vika og hluti af þessari viku.
Margt fleira er í gangi þessa viku hjá nemendum skólans og munum við birta fleiri fréttir í lok vikunnar um það sem nemendur voru að gera.






