2. október 2026

Símafriður í Heiðarskóla

Nú nýverið var sendur póstur heim varðandi nýja reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskóla og á frístundaheimilum. Bannið var einnig rætt á samskiptadegi hjá 8. - 10. bekk. Samkvæmt reglugerðinni eiga símar eða önnur snjalltæki ekki að vera aðgengileg nemendum á skólatíma.

Við í Heiðarskóla hvetjum foreldra til að styðja við innleiðinguna strax með því að símar eða önnur snjalltæki séu skilin eftir heima. Símar og snjalltæki sem höfð eru meðferðis í skóla og eru ekki í eigu eða umsjá skóla eða frístundaheimilis, eru á ábyrgð eiganda viðkomandi tækis og skulu vera geymd í skólatöskunni og eiga ekki að sjást á skólatíma.

Í frímínútum er og verður margt í boði fyrir nemendur, þar á meðal spil, púsl, leikjaborð og fjölbreytt útileiksvæði ásamt því að nemendur í 8. – 10. bekk geta dvalið á bókasafninu og lesið og farið í íþróttasalinn á fyrirfram auglýstum tímum.

Við ætlum að vinna vel að þessari breytingu sem hefur það að markmiði að styðja við betri námsfrið, sterkari félagsleg tengsl og aukna vellíðan barna í skólanum. 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus