Sigur í sumarlestri

Heiðarskóli sigrar sumarlesturinn!
Nemendur Heiðarskóla stóðu sig frábærlega í sumarlestarverkefni Bókasafns Reykjanesbæjar og tryggðu skólanum 1. sætið með samtals 615 lestrarstundir!
Við erum himinlifandi og virkilega stolt af duglegu lestrarhestunum okkar og þökkum öllum nemendum sem tóku þátt
Fjórir nemendur í Heiðarskóla hlutu sérstaka viðurkenningu fyrir dugnað og góðan árangur en það voru þau, Alma Rún Arnarsdóttir 4. bekk, Ástrós Emma Davíðsdóttir 4. bekk, Gylfi Karl Sveinbjörnsson 2.bekk og Jón Arnar Jónsson 3. bekk.

Háaleitisskóli varð í 2. sæti með 600 stundir og Akurskóli í 3. sæti með 241 stund.
Yfir 200 börn tóku þátt og lásu samtals 2191 klukkustundir. Sturluð staðreynd er að ef einn nemandi les 2191 klukkustund, tekur það hann u.þ.b. 91 dag í samfelldum lestri. Frekar magnað 🙌
Ekki annað hægt að segja en bornin í Reykjanesbæ hafa verið dugleg að lesa í sumar





