30. ágúst 2016

Setning Ljósanæturhátíðar

Á fimmtudaginn tökum við þátt í setningu Ljósanæturhátíðar við Myllubakkaskóla. Nú sem endranær hvetjum við nemendur okkar og starfsfólk til að mæta í bláu þann daginn. Gengið verður frá Heiðarskóla uppúr kl. 10.00 og brýnt er að nemendur séu klæddir eftir veðri þennan dag sem alla skóladaga.

Grunnskólabörn bæjarins ásamt elstu börnum leikskólanna, alls um 2.000 börn setja Ljósanæturhátíðina ár hvert. Þau koma fylktu liði í skólalitum hvers skóla, til tákns um fjölbreytileika mannkynsins, og syngja sig inn í Ljósanæturhátíðina. Setningin verður með örlítið breyttu sniði í ár en hún hefst kl. 10.30 og lýkur kl. 11.00. Foreldrar og aðrir áhugasamir eru velkomnir á þessa stund.  
 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan