Páskafrí og páskalestur
Mánudaginn 10. apríl hefst páskafrí hjá nemendum og starfsfólki Heiðarskóla. Skóli hefst aftur þriðjudaginn 18. apríl samkvæmt stundaskrá.
Nemendur hafa verið duglegir að lesa í vetur og hvetjum við þá til að halda sér í góðri lestraræfingu í páskafríinu með notalegum lestrarstundum.
Gleðilega páska!