31. mars 2023

Páskafrí

Mánudaginn 3. apríl hefst páskafrí hjá nemendum og starfsfólki Heiðarskóla. Skóli hefst aftur þriðjudaginn 11. apríl samkvæmt stundaskrá. 
 
Nemendur hafa verið duglegir að lesa í vetur og hvetjum við þá til að halda sér í góðri lestraræfingu í páskafríinu með notalegum lestrarstundum. 

Einnig er vakin athygli á því að frí verður í skólanum fimmtudaginn 20. apríl en þá er sumardagurinn fyrsti. 

Gleðilega páska!

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan