17. apríl 2015

Öskubuska - styrktarsýning

Þriðjudaginn 21. apríl verður styrktarsýning á unglingaleikritinu Öskubusku á sal skólans. Leikritið er bráðskemmtileg nútímauppfærsla á hinu klassíska ævintýri og hefur það hlotið frábærar viðtökur sýningargesta. Fyrir páska voru þrjár almennar sýningar. Á þeirri síðustu var uppselt og þurfti því miður að vísa fólki frá. Þetta verður allra síðasta sýningin og eru áhugasamir því eindregið hvattir til að koma og styrkja um leið gott málefni en allur ágóði af sýningunni mun renna til Krabbameinsfélag Suðurnesja. Sýningin hefst kl. 20.00 og stendur yfir í rúma klukkustund.
 
Miðaverð er 1000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir grunnskólanemendur. 
  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan