Námfús - námsumsjónarkerfi

Nýtt námsumsjónarkerfi – Námfús
Á þessu skólaári tekur Heiðarskóli upp nýtt námsumsjónarkerfi, Námfús, sem verður sameiginlegur vettvangur fyrir upplýsingar og samskipti milli heimila og skóla. Kerfið mun smám saman leysa InfoMentor af hólmi.
Innleiðingin tekur tíma og því má búast við að fyrstu vikurnar og mánuðirnir fari í að aðlaga vinnulag og þróa notkun kerfisins. Ekki verða allar upplýsingar komnar inn strax og sumir þættir byggjast upp í áföngum.
Aðgangur fyrir forráðamenn
Í dag miðvikudaginn 26. ágúst verða sendar út upplýsingar um innskráningu. Fylgist vel með tölvupósti næstu daga. Athugið að póstur getur í einhverjum tilfellum lent í ruslpósti, svo gott er að kíkja þar ef hann skilar sér ekki.
Hvað er Námfús?
Markmiðið er að safna helstu upplýsingum um skólastarfið á einn stað. Í kerfinu má meðal annars nálgast:
- stundatöflur
- mætingu
- verkefni, kennsluáætlanir og námsmat
- dagatal og viðburði
- skilaboð frá skólanum
Meðan á innleiðingu stendur getur virkni verið mismunandi eftir árgöngum og námsgreinum, og upplýsingar um námsframvindu munu þróast áfram eftir því sem kennarar kynnast kerfinu betur.
Aðgengi
Námfús er aðgengilegt á vefnum (namfus.is) og í appi (leitið að „Námfús" í App Store eða Google Play).
Við hlökkum til að taka Námfús í notkun og þökkum fyrir þolinmæði á meðan kerfið kemst í fulla virkni.
Námfús — Eitt kerfi fyrir allt skólastarf
Frá kennslustofunni til sveitarfélagsins. Námfús safnar umsýslu, námi, stundatöflum, fjármálum og samskiptum á einn stað.






